fósturfræði er á morgun og ég er tiltölulega sultuslök.
ég næ þessu prófi pottþétt nema ef kennarinn komi með einhverjar mjög óvæntar uppákomur í prófspurningum ;)
annars er Tryggur (bíllinn minn) kominn í "lag" og kominn aftur í mínar hendur, þess vegna er ég ekki lengur keyrandi um á Stjána Bláa sem var orðinn frekar leiðinlegur við mig ( mórall er þetta )
mamma kom líka og gaf mér smá dót í eldhúsið ( já ég á orðið pönnukökuspaða og get því bakað pönnukökur LOKSINS)...
svo var hún svooo sæt og gaf mér dökkbleika Gerberu ( sem er uppáhalds blómið mitt) svona af því að ég er í prófum
brósi er fluttur til víkur og það eru bara 14 dagar þangað til að ég flyt, smá blendnar tilfinningar þar á ferð enda vildi ég aaaalveg eins vera í bænum, hjá öllu þessu frábæra fólki sem er alltaf í kringum mig þar. Þetta er síðasta sumarið sem ég vinn þar sem ég fæ hæstu launin... ætli ég verði ekki einhversstaðar að hjúkra fólki næsta sumar :)
á laugardaginn er ég að fara að syngja í Brúðkaupi í Garðakirkju og fékk Hjördísi Ástu til að vera mér til halds og trausts
svo minni ég á 12. maí á kaffinu í vík ! þið MEGIÐ ekki láta ykkur vanta :p
kv
Ragna- sem skrifar blogg algerlega í engu samhengi !
Gangi þér vel á morgun! mæti í pönnsur þegar þú ert búin í prófum eða bara í morgunpönnsur áður en við förum út! ;)
SvaraEyðaTryggur??? ertu búin að skíra Trausta upp á nýt??? :)
SvaraEyðaAnnars takk fyrir heimsóknina.. alltaf gaman að fá þig :)
mig langaði í pönnukökur þegar ég las þetta, verst að ég nenni ekki baka þær :$
SvaraEyðatrausti var gamli bílinn hennar
SvaraEyða