já ég lofaði Birnu þessum brandara :D
... ég hafði samt einhverntíman lært hann aaaaeins öðruvísi en punch-line-ið er það sama :D
enjoy :p
Maður nokkur var í leigubíl og pikkar í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar.
Leigubílstjórinn öskrar upp yfir sig, missir stjórn á bílnum, næstum því búinn að keyra í veg fyrir strætó, fer upp á gangstétt og stoppar örfáum sentímetrum frá búðarglugga.
Í nokkrar sec. er allt hljótt í bílnum. Síðan segir bílstjórinn: "Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur. Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!"
Farþeganum er illa brugðið en segir að lokum: "Fyrirgefðu ég vissi ekki að smá pikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum.."
"Æj, fyrirgefðu" segir bílstjórinn, "þetta er nú reyndar ekki þín sök.
Í dag er fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri, ég er búinn að vera að keyra líkbíl í 25 ár..."
fattaði það þegar ég opnaði skjalið að ég hef ekki opnað "Word" í nákvæmlega viku núna.... hvað ætli það sé langt síðan það hafi gerst ?!
- p.s. Ragna.safn.net liggur niðri að óútskýranlegum orsökum ( eða ég veit ekki meir...)
góður! lyfti mér ágætlega upp í kristinfræðikennslunni! takktakk
SvaraEyðahahaha.. ó Ragna ó Ragna!
SvaraEyðaSakna þín strax bara held ég..
Hæ sæta spæta!!
SvaraEyðaÍ þessum töluðu orðum ert þú sennilega á leið til Mallorca og ég er að öfunda þig súper mikið!!! Hvar er þetta hótel á eyjunni eiginlega? Jæks! Væri ekkert smá til í að skella mér þangað í viku eða sjö;)
Hafðu það gott gella og drekktu nokkra kokteila fyrir mig;)
kv,
Solla