Það er SVO auðvelt að meira að segja Viðar hefur bakað bananabrauð sem var alveg fullkomið.
Hér kemur uppskrift af einu bananabrauði.
| Þurrefnin sett í skál |
| Bönunum bætt við |
Nei... ok.
í guðana bænum stappið þá fyrst. En Viðar ætlaði nú að gera þetta svona þegar hann gerði þetta fyrst.
Þetta er ekki hægt...
stappið þá fyrst
takk :)
Notið helst gamla brúna banana...
Bakið endilega bananabrauð þegar þið eigið gamla brúna banana :) það er mun skemmtilegra en að henda þeim
Uppskrift:
2 bananar
1/2 bolli sykur
1 bolli hveiti
1 egg
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
Aðferð:
Þurrefnum er blandað í skál
Bananar stappaðir og blandað saman við ásamt 1 stk egg. Hrært saman með sleif þar til allt er blandað saman
sett í smurt form og bakað í 30-40 mínútur á 180°C.
Borðist niðursneytt með engu, með smjöri, með smjöri og osti og jafnvel með kæfu (jább.. þekki einn sem gerir það, síríjöslí)
svo verð ég að segja að þetta er snilldarbrauð til að fara með í útileguna í sumar !
Það mylst lítið sem ekkert þetta brauð, það geymist lengi og er alltaf mjúkt og gott
enjoy !
| Þurrefni, bananar og egg... ekki flókið :) |
| Hrært saman með sleif... Gleymdi ég að segja ykkur að þetta er uppskrift fyrir þá sem eiga hvorki handþeytara eða hrærivél |
![]() |
| Sett í smurt mót |
![]() |
| inní miðjan ofn á 180°C í 30-40 mínútur (fer eftir stærð mótsins...) - mitt er í 35 mínútur |
| Bananabrauð og Marmarakaka.... |
Uppskrift:
2 bananar
1/2 bolli sykur
1 bolli hveiti
1 egg
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
Aðferð:
Þurrefnum er blandað í skál
Bananar stappaðir og blandað saman við ásamt 1 stk egg. Hrært saman með sleif þar til allt er blandað saman
sett í smurt form og bakað í 30-40 mínútur á 180°C.
Borðist niðursneytt með engu, með smjöri, með smjöri og osti og jafnvel með kæfu (jább.. þekki einn sem gerir það, síríjöslí)
svo verð ég að segja að þetta er snilldarbrauð til að fara með í útileguna í sumar !
Það mylst lítið sem ekkert þetta brauð, það geymist lengi og er alltaf mjúkt og gott
enjoy !


Ó gleði! Mig langaði akkurat að gera bananabrauð en þær uppskriftir sem ég hef prófað hingað til hafa ýmist krafist of mikils vesens eða ekki verið nógu góðar.
SvaraEyðaÞessi, aftur á móti, er fullkomin. Fá og basic hráefni, fullkomin not fyrir brúnu bananana, fljótleg og gefur unaðslegt brauð - sérstaklega þegar maður skellir crunchy hnetusmjöri á það meðan það er enn heitt. Namm.
Svo eru líka bónusstig fyrir að þurfa ekki hrærivél. Kemur sér einkar vel fyrir námsmenn í útlegð í útlandinu - sem eru þ.a.l. án alls almennilegs eldhússbúnaðar.
Muchas gracias!
Krissa systir Erlu Þóru :)
Þetta bananabrauð er snilld- 10 ára sonur minn bakar það án vandkvæða, notar spelt og hrásykur og bætir 70% súkkulaðispæni saman við- hvílík himnasæla! :)
SvaraEyðaÉg rakst á þessa og hún er æðisleg!
SvaraEyðaÉg var að baka tvöfalda uppskrift og átti ekki nema tæpan hálfan bolla af sykri, en ég átti kanilsykur inni í skáp og setti hann á móti.
Það er fullkomnun!
Mæli með að þú prófir að nota bara kanilsykur næst þegar þú gerir þessa uppskrift, ég ætla amk að gera það :)
Við bökum þetta reglulega í vinnunni þegar bananarnir eru orðnir svo illa útlítandi að engin myndi borða þá. Setjum 50/50 hveiti og heilhveiti og svona 1/3 af sykrinum sem á að fara og það er mjög gott :)
SvaraEyðaFrábær uppskrift Ragna, kærar þakkir var að leita að e-u mjög fljótlegu og einföldu og það stemmir og hún er ekkert smá góð, Kv. Amalía
SvaraEyðaSæl
SvaraEyðaTakk takk. Var að prófa uppskriftina, brauðið er enn í ofninum, en ég sé að það lyftir sér ekkert. Er það eðlilegt?
Fyrir utan að þetta er fremur lítil uppskrift þá er þetta fullkomið :o)
SvaraEyðaMjög góð uppskrift :)
SvaraEyðaTakk fyrir þessa góðu uppskrift! Ég þeyti eggin (tvöfalda uppskriftina alltaf) mjög lengi þangað til þau eru orðin vel freyðandi og létt. Mér finnst brauðið verða mun léttara þannig. Svo sleppi ég reyndar alveg sykrinum, bananarnir eru alveg nógu sætir þykir mér, sérstaklega ef þeir eru orðnir ofþroskaðir :).
SvaraEyðaKær kveðja
Bryndís
Þrusugótt banana brauð bakaði einfalda en er að gera tvöfalda
SvaraEyðaÉg fann þessa uppskrift um daginn og ji minn eini hún er ótrúlega góð og ég er að fara að gera brauð núna í fjórða skiptið á tveim vikum. Ég prófaði eftir að ein hérna að ofan sagðist hafa notað kanilsykur að skella smá kanil í og úfff bara æðislegt.
SvaraEyðaTakk fyrir
Erna
p.s ef ég er að leita að uppskrift á netinu og síðan þín kemur upp með þessa uppskrift þá nota ég hana og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með neitt á síðunni þinni :)
sæl, mig langar að spyrja hvað ég se að gera vittlaust ég gerði 2 falda uppskrift og var með 2 form skipti niðrí þau og hvort um sig er ekki nema 1,5 cm á hæð..? og var í ofni í 33 mín.. ? :/
SvaraEyðaMér finnst líklegast að formin sem þú notar seu og stór. Formin mín eru á stærð við álformin sem fást í öllum elstu búðum og því minni en sum form sem hægt er að fá
EyðaHEHE ok takk takk prufa þau :)
SvaraEyðakjellan reif í sig eitt stykki bananabrauð og rúllaði inn í helgina með einum ííísköldum á kentinum !
SvaraEyðatakk fyrir þessa ÆÐISLEGU uppskrift, chow!
svaga got bröð, myg lángar í meir ætla að búa til meir bröð.
SvaraEyðaeki svona got bröð í poland.
Er ekki lyftiduft? hvað veldur lyftingnum?
SvaraEyðaEggin :)
Eyða