Jæja. Fæðingarorlofinu frá blogginu er formlega lokið :)
Dóttirin er fædd, hávær, sæt og yndisleg og var skírð síðustu helgi og heitir núna Árdís Rún :)
Já, ég veit, ég hef hingað til notað uppskriftina af Djöflatertunni sem er hérna á síðunni og gert súkkulaði muffins úr henni.
En stundum hefur mér fundist hún vera svoldið þurr og dottið í sundur sem muffins.
hér er því endurbætt útgáfa sem passar akkúrat í 12 riiiisamuffins :)
þeytið vel saman smjör og sykur. Hérna er ég svo búin að þeyta eggjunum einu og einu útí í einu og þá lítur blandan svona út |
öll þurrefnin sett vigtuð og mæld í eina skál. Skellt saman við smjörhræruna og súrmjólk bætt við á sama tíma |
Hræran tilbúin til að setja í form. Hér mætti blanda grófsöxuðu súkkulaði saman við |
sett í stór muffinsform... og þau næstum alveg fyllt. Ath að það þarf að vera með muffinsmót undir formunum, annars fletjast þau út í ofninum |
ok, það er alveg smá sjéns að þetta sé girnilegt óbakað? |
ofan á hverja múffu setti ég gróftskorið súkkulaði |
halelúja!!! |
Uppskrift
(gerir 12 risastórar muffins eða 24 minni)
Einnig hægt að gera súkkulaðiköku eða skúffuköku. Passar í 2 hringlaga form eða skúffukökuform
170 gr smjör
300 gr sykur
2 tsk vanilluextract
3 egg
270 gr hveiti
1 tsk matarsódi
2 tsk lyftiduft
70 gr kakó
2.5 dl léttsúrmjólk (eða súrmjólk þynnt með smá mjólk
Aðferð
-Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan er vel blönduð og hefur lýst. Blandið saman eggjunum einu í einu saman og þeytið mjög vel þar til blandan er loftmikil og ljós
-Bætið öllum þurrefnunum saman og súrmjólkinni. Hrærið í 1 mínútu þar til blandan er vel blönduð saman
-setjið í stór muffinsform (fást í www.alltikoku.is eða þið getið klippt smjörpappír í ferninga og sett í muffinsmót)
-Bakið í miðjum ofni við 180°C í 30-40 mínútur.
punktar:
-Geymast gríðarlega vel
-Bætið 2 dl af grófsöxuðu sukkulaði útí ef þið viljið súkkulaðibita
-Getið gert súkkulaðikremsfyllingu: Gerið súkkulaði ganache (150 gr rjómi + 150 gr súkkulaði brætt saman, látið kólna aðeins og sprautað inni hverja muffins... mmm
njótið