þriðjudagur, 29. mars 2011

Sjónvarpskaka

Langaði að baka eitthvað í gærkvöldi og var lengi að ákveða hvað ég skyldi baka




Á endanum ákvað ég að baka klassíska sjónvarpsköku sem ég deili nú með ykkur


Uppskriftin smellpassar í skúffukökuformin með plastlokunum sem fást orðið út um allan bæ og líta meðal annars svona út :




Uppskrift:

4 egg 
300 gr sykur
1 tsk vanilluextract 
250 gr hveiti
3 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
50 gr smjör 

Aðferð:

-Egg og sykur þeytt saman þar til létt og ljóst, vanilluextract hrært saman við 
-Þurrefni sigtuð saman við (nokkuð mikilvægt að vippa fram sigtinu í svona köku) og svo hrært þar til allt er blandað
-Smjör og mjólk er hitað þar til að smjörið fer að bráðna og svo hrært aðeins í svo að það leysist að lokum alveg uppí mjólkinni
-mjólkur og smjörblöndunni hellt út í deigið og hrært þar til allt er vel blandað saman.
-Hellt í vel smurt skúffukökumót (Ath, hér hugsa ég vanalega... SJITT þetta er þunnt deig, en þannig á það að vera)
-Bakað við 180°C í ca 30-40 mínútur eða þar til prjóni sem stungið er í kökuna kemur hreinn út og kakan er farin að losa sig frá hliðunum, hún er þá tekin út og kókosblöndandan er sett ofan á í smá skömmtm og dreift vel út um alla kökuna. Kakan er svo sett aftur inn í 5 mínútur og að lokum tekin út, látin kólna og svo étin með bestu lyst :) 

Ofaná kökuna:

100 gr smjör
150 gr kókosmjöl
200 gr púðursykur
1/2 dl mjólk

Aðferð:

Sett í pott og soðið saman við vægan hita í 2 mínútur. Sett ofan á kökuna þegar hún er tilbúin og bökuð svo í 5 mínútur lengur 

p.s. 
Allir ofnar eru mismunandi. Það er því alltaf best að fylgjast vel með kökunum og taka þær frekar út þegar þær eru tilbúnar en ekki hengja sig á tímann sem sagt er að það taki að baka hana. 
Að vísu eru allir óöruggir þegar þeir eru að byrja bakstursferilinn að átta sig á því hvenær kakan er tilbúin og hvenær hún þarf að vera 5-10 mín lengur inni. 
Almenna reglan er þó sú að komi prjónninn hreinn út, þ.e. ekki með deigklessur á sér og kakan dúar ekki þegar þú bankar ofan á hana + að hún er farin að losa sig frá hliðunum á forminu þá er hún tilbúin. 

með kveðju

Ragna 

3 ræðumenn:

  1. Nafnlaus9:56 AM

    ohh mig langar að þekkja þig :) alltaf jafn gaman að kíkja inná þessa síðu, þú ert ofur :)

    kv. Jóhanna

    ReplyEyða
  2. Ég hef aldrei verið sérstakur aðdáandi sjónvarpsköku og þ.a.l. aldrei bakað hana áður. Var að prófa þessa uppskrift og hún er hrikalega góð - ekki svona greasy og ógeðsleg eins og mér finnst þær oft vera.

    Stóðst ekki mátið og smakkaði smá á kökunni sjálfri áður en ég skellti kókosgumsinu á og hún er líka delicious. Pottþétt hægt að nota hana í fullt annað en 'bara' sjónvarpsköku. Unaður! Þessi verður klárlega gerð aftur!

    Og by the by, kúdós fyrir síðunni og nennunni sem fer í að halda henni úti (og taka myndir af öllum skrefum matargerðarinnar/bakstursins). Æði :)

    Krissa Erlu Þórusystir

    ReplyEyða
  3. Guðrún6:44 PM

    þessi kom upp þegar ég googlaði, bakaði hana með sunnudagskaffinu, mjög góð.

    ReplyEyða

Ragna.is er matarbloggsíða sem allir geta notið og notað


Veljið Anonymus ef þið eruð ekki með heimsíðu, gmail eða annað til að skrá ykkur inná. Vinsamlegast kvittið svo undir nafni :)