Einhvernveginn lá leið okkar svo upp í Heiðmörk þar sem þvottabrettavegur ársins var fundinn. Það er nú kannski skömm að segja frá því en ég hef hreinlega aldrei komið upp í Heiðmörk áður ! ég kenni því bara um að það hefur enginn boðið mér þangað ! pliff !! :)
ferðin var þess í stað ansi spennandi og skemmtileg þegar við hristumst sundur og saman hlustandi á "Í brekkunni á Þjóðhátíð í Eyjum" Við gerðum líka smá pit-stop þegar við sáum draumahúaið okkar !
jæja
ég ætla að reyna að toga nýrun mín upp á sinn rétta stað... mig grunar að þau hafi skoppað niður í grind í öllu þessu hoppi og skoppi ;)
hey flott hús!!
SvaraEyðaþú veist að unglingar sem eru nýkomnir með bílpróf fara einmitt í Heiðmörkina til að keyra hratt og skransa...og velta svo nýju fínu bílunum sínum eða foreldra sinna, það er mjög oft verið að ná í tjónabíla og rjóða unglinga upp í Heiðmörk ;)
SvaraEyðaMig langar í svona hús..
SvaraEyðaHehe... Ohh hvað ég var farin að sakna rúntanna okkar þegar við villtumst um götur borgarinnar á Trausta, skellihlæjandi og hlustandi á góða tónlist. Takk æðislega fyrir rúntinn! :)
SvaraEyða