þriðjudagur, 28. desember 2010
laugardagur, 25. desember 2010
Jólin 2010 í myndum
| Ég og Viðar |
| það þarf klárlega að endurskoða stærð jólatrésins... pakkarnir komust ekki undir |
| og aðrir pakkar voru settir hinumegin við hurðina |
| jólaborðið |
| jólahundurinn |
| safaríki og bragðgóði jólamaturinn |
| Familían |
| Hundurinn sem fær líklega hjartabilun á næstunni af saltáti |
| Þráinn og Karen að opna stóra pakkann |
| ég opnaði sjálfvirka kaffivél og þráinn og karen dáðust að risa grillinu sínu |
| sátt! |
| Mamma og pabbi fengu matvinnsluvél |
Erum enn í Vík en það verður humar í kvöldmatinn og brunum við svo aftur í bæinn. Næturvakt í nótt hjá hjúkkunni.
klukkan
16:15
| mér finnst: |
föstudagur, 24. desember 2010
miðvikudagur, 22. desember 2010
mánudagur, 20. desember 2010
Lakkrísbitakökur
Eða Lakkrískurlkökur
eða Kurlkökur
eða Lakkríssmákökur
eða Lakkrístoppar
eða Lakkrísbitasmákökur
Það er nú meira hvað hægt er að kalla sömu smákökurnar mörgum nöfnum :)
Það var gaman að sjá kommentin við gjafaleiks-færsluna. Held nú að flestir hafi kosið Sörur sem uppáhalds jólasmákökurnar en þar næst komu Lakkrísbitakökurnar sterkt inn.
Ég hef því ákveðið að henda inn uppskriftinni hennar mömmu að lakkrísbitakökum og smá leiðbeiningum með fyrir þá sem eru kannski að fara að gera þessar kökur í fyrsta sinn.
Það eru eflaust til fjöldinn allur af uppskriftum fyrir þessar kökur en hér er ein sem hefur aldrei klikkað (ef hún er gerð svona eins og ég sýni ykkur á eftir).
Mér finnast lakkrísbitakökur eiga að vera litlar, með grófri áferð (ekki léttar og kúptar), crunchy að bíta í en aðeins mjúkar inní. Þessi uppskrift er með ljósum púðursykri sem gerir marengsinn aðeins karmellulegri í bragði en það bitnar ekki á litnum á þeim og þær halda þessu fallega hvíta útliti sem hvítur marengs á að hafa.
Oft verða kökurnar harðar, með hörðum lakkrís eða fletjast út í ofninum. Ástæður fyrir því geta verið gamall lakkrís, of mikið bakaðar og of lítið þeyttar eggjahvítur
Gerir ~70-75 stk
gjörið svo vel :)

| Hráefnið er nú ekki mikið. Allt gífurlega "heilsusamlegt" samt. Endilega gerið bara kökurnar litlar ! :) |
| Þeytingin skiptir miklu máli. Ég þeyti eggin+ljósa púðursykurinn í tæpar 10 mínútur í handþeytaranum já. . . seriously. ég á ekki hrærivél |
| þetta á að vera stíft. Vel á að mótast í marengsinn eftir þeytarann og koma fallegur toppur á marengsinn þar sem þú tekur þeytarana uppúr |
| Lakkrísbitum og súkkulaði skellt ofan í marengsinn |
| Mjög mikilvægt að leggja þeytaranum þegar þessu er blandað saman. Notið sleikju eða sleif og veltið þessu hægt og rólega saman |
| vel blandað... þá er bara að.. ? |
3 stk eggjahvítur
200 gr. ljós púðursykur
150gr. súkkulaði saxað
1 poki lakksískurl
Eggjahvítur og púðursykur þeytt vel, lakkrískuklið og súkkulaði blandað varlega saman.
Bakað við 150°c í 15 mín.
(athugið að ef kökurnar eru stærri, þá lengist að sjálfsögðu bökunartíminn)
(athugið að ef kökurnar eru stærri, þá lengist að sjálfsögðu bökunartíminn)
Gerir ~70-75 stk
gjörið svo vel :)
klukkan
22:44
| mér finnst: |
Vinningshafi
Dró út einn heppinn lesanda sem kommentaði á síðustu færslu
númeraði öll kommentin og notaði svo randomizer.org til að velja eina random tölu.
Sú heppna var Helena Smáradóttir og á hún núna email frá mér með frekari upplýsingum
til hamingju Helena :)
númeraði öll kommentin og notaði svo randomizer.org til að velja eina random tölu.
Sú heppna var Helena Smáradóttir og á hún núna email frá mér með frekari upplýsingum
til hamingju Helena :)
klukkan
12:09
| mér finnst: |
fimmtudagur, 16. desember 2010
Gjafaleikur - Giveaway
Jæja
Ég er í jólaskapi og hef því ákveðið að gefa einum heppnum lesanda jólagjöf.
Jólagjöfin er frábrugðin öðrum jólagjöfum þar sem það getur vel verið að ég þekki EKKERT þann sem vinnur gjöfina og þið fáið að vita hvað verður í pakkanum
Heildsalan Serica gefur þennan fallega kökudisk. En þessir diskur fást í Hverablómi, Hveragerði og Gallerý Nýblóm í Mosfellsbæ og kostar aðeins í kringum 4000 kr sem er ansi lítið fyrir kökudisk á fæti skal ég segja ykkur

![]() |
| Hér stendur annar samskonar en minni diskur ofan á |
Til að taka þátt þá þurfið þið aðeins að skrifa í kommentin hver er ykkar uppáhalds jólasmákökutegund og kvitta undir nafni og með emaili svo ég geti haft samband við ykkur.
Ég mun svo draga út rosalega heppinn lesanda af handahófi á mánudagskvöld, hafa samband við ykkurog senda ykkur pakkann í pósti.
Látið berast !! :)
Kv
Ragna Björg
klukkan
19:49
| mér finnst: |
Jólagjöf til lesenda - Giveaway!!
Ég hef ákveðið að gefa einum sem fylgist með blogginu gjöf í tilefni jólanna :)
Fylgist með á fimmtudaginn.
Ég mun þá segja hvað þið þurfið að gera til að taka þátt og hver gjöfin mun vera :)
(það þarf samt alveg pottþétt ekki að gera "like" á facebook, ég lofa því)
klukkan
04:20
| mér finnst: |
miðvikudagur, 15. desember 2010
Jólabakstur
Ég hef nú ekki gert mikið í því núþegar að baka fyrir jólin.
Ég og Ingibjörg Rósa hittumst hins vegar hér í Stubbaselinu um daginn gerðum breskar Mince pies sem eru litlar bökur fylltar með fyllingu sem samanstendur af sætum þurrkuðum ávöxtum, hnetum, möndlum og smá áfengi.
Alveg skugglega gott og minnir okkur báðar á tímann sem áttum í Bretlandi þó að það hafi verið um 10 ár á milli þess sem hún var í UK og svo þegar ég var þar ...
Vignir, frændi viðars kom svo og hjálpaði Viðari við piparkökubaksturinn og á meðan gerðum við Ingibjörg einnig sörur (fyrsta skiptið hjá mér, og tókst snilldar vel ! )
Við sátum svo öll og skreyttum piparkökurnar saman.
ég vil koma með eina sniðuga ábendingu.
Ekki nota glassúr á piparkökurnar. Gerið frekar krem sem heitir "Royal Icing"
Það litast mun fallegra heldur en glassúrið og gerir kökurnar ekki svona skelfilega linar eins og glassúrið gerir.
Gaman er að setja krem í sprautupoka líka og sprauta þá útlínurnar og nota þynnra krem í sama lit til að fylla uppí eyðurnar. eins og hér :
eða hér:
Skoðið svo SignatureSweetShoppe youtube síðuna og dáist að fallegu jólakökunum sem hún skreytir ! :)
Royal Icing kýs ég að gera með meringue powder (fæst í Húsasmiðjunni)
uppskriftin er hér: Royal Icing
Nú orðið fæst orðið meira og meira af skrauti, lituðum sykri, matarlitum (ég mæli eingöngu með gel-matarlitum, þeir koma einfaldlega fallegast út í hvert skipti og þynna ekki kremin), skrauti og spreyi.
Enn sakna ég margs sem ég sé á erlendum síðum en þetta er allt að koma.
Helsti draumurinn væri ef einhver búð myndi bjóða upp á allt vöruúrval Wilton og þá yrði ég hamingjusöm ! (Búðir sem selja Wilton vörur á íslandi eru t.d. Húsasmiðjan, Byko og Partýbúðin)
jæja folks !
þið sem eruð ekki búin að gera piparkökur.. go for it !

| samvinnan var gríðarleg |
| ótrúlega góðar saman |
| mincemeat að fara bollana |
| lokið sett á |
| tilbúin !!!! |
| girnlilegar. gylltar, heitar sætar, crunchy... |
| málarateamið |
| nauðsynlegt að halda einbeitingu ! |
| Arnar Smári duglegur |
| nauðsynlegt að hafa málara í svona verk :) |
jæja folks !
þið sem eruð ekki búin að gera piparkökur.. go for it !
klukkan
00:51
| mér finnst: |
mánudagur, 13. desember 2010
Eplaskífur
Gleymi alltaf að gera blogg um eplaskífurnar mínar ....
þarf að fara að gera það við tækifæri
er það ekki annars? :)
klukkan
18:42
| mér finnst: |
fimmtudagur, 9. desember 2010
Súkkulaði cupcakes með karamellu
Svo simple og svo gott !
Notið uppskriftina að súkkulaði cupcakes sem þið finnið hér
Setjið svo hálfa karamellutöggu eða einhverssskonar harða karamellu ofan á deigið þegar það er komið í formin í muffinsmótinu. Bakið kökurnar eins og venjulega og kakan mun svo gleypa karamelluna :)
| mmmm karamella ! |
| Til þess að toppa þetta setti ég Smucker's karamellu topping ofan á kökurnar líka! (fæst í hagkaup) Margar aðrar gerðir af karamellusósu koma til greina |
Enjoy !!! :)
klukkan
10:38
| mér finnst: |
þriðjudagur, 7. desember 2010
Saltfiskur undir spænskum áhrifum
Ég elska saltfisk... Ég fæ mér frekar saltfisk á veitingastöðum frekar en nautasteik og ég er ekkert að skrökva.
Á veitingastöðum er saltfiskur oftast borinn fram með tómatasósu og ég hef prufað nokkrum sinnum að gera eitthvað hérna heima sem hefur tekist ansi vel til.
Núna ákvað ég að vigta allt og mæla og til að deila með ykkur og eins og þið kannski takið eftir ef þið hafið skoðað uppskriftirnar mínar þá er uppskriftin keimlík uppskriftinni minni af ofnbakaða fiskréttinum en er kannski aðeins flóknari en hún þó svo að sumir grunnþættir séu eins
| byrja á að undirbúa allt fyrir fiskinn, setja bygg í eldfast mót. hveiti í e-ð ílát og hér er ég að vigta fiskinn fyrir ykkur |
| Fiskurinn þakinn í hveiti og smá svartur pipar mulinn yfir, hér þarf að sjálfsögðu ekki að salta :) fiskueinn er svo steiktur í olíu þar til rétt gullinn og lagður ofaná bygggrjónin |
| Laukur, hvítlaukur, beikon og ólífur steikt saman a pönnu í 2 mín ca, ekki á hæsta hita |
| tómatsósum bætt útí |
| rétt áður en þið hellið tómatasósunni yfir fiskinn, bætið steinselju við |
| Fisknum raðað í mót og sósunni hellt yfir |
| Það þarf í sjálfu sér ekkert ost.. þetta er gott og girnilegt eins og þetta er svona ! |
| En hver vill ekki smá ost? Bakað í ofni þar til osturinn verður aðeins gullinn |
Uppskrift:
600-700 gr beinhreinsaður saltfiskur skorinn í stykki
0.3 dl matarolía
3 dl hveiti
Pipar
5 dl soðið bygg eða hrísgrjón
Sósa:
1/2 laukur saxaður
2 hvítlauksrif
2 beikonsneiðar, skornar í strimla
1 dl ólífur, sneiðar, heilar, svartar eða grænar
1/2 tsk chilipiparfræ (má sleppa)
1 dós hakkaðir/saxaðir tómatar
2 dl tómatsósa í fernu (tómat passata) (sjá mynd)
3 msk fersk steinselja (má nota þurkkaða)
Herbamare salt
pipar
1 tsk púðursykur
| svona lítur tómat-passata út sem fæst í bónus. |
nú er um að gera að prufa að gera saltfiskrétt í stað soðins saltfisks :)
Næst á dagskrá er að sýna ykkur karamellu súkkulaði-cupcakes ;)
klukkan
22:10
| mér finnst: |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)