eða Kurlkökur
eða Lakkríssmákökur
eða Lakkrístoppar
eða Lakkrísbitasmákökur
Það er nú meira hvað hægt er að kalla sömu smákökurnar mörgum nöfnum :)
Það var gaman að sjá kommentin við gjafaleiks-færsluna. Held nú að flestir hafi kosið Sörur sem uppáhalds jólasmákökurnar en þar næst komu Lakkrísbitakökurnar sterkt inn.
Ég hef því ákveðið að henda inn uppskriftinni hennar mömmu að lakkrísbitakökum og smá leiðbeiningum með fyrir þá sem eru kannski að fara að gera þessar kökur í fyrsta sinn.
Það eru eflaust til fjöldinn allur af uppskriftum fyrir þessar kökur en hér er ein sem hefur aldrei klikkað (ef hún er gerð svona eins og ég sýni ykkur á eftir).
Mér finnast lakkrísbitakökur eiga að vera litlar, með grófri áferð (ekki léttar og kúptar), crunchy að bíta í en aðeins mjúkar inní. Þessi uppskrift er með ljósum púðursykri sem gerir marengsinn aðeins karmellulegri í bragði en það bitnar ekki á litnum á þeim og þær halda þessu fallega hvíta útliti sem hvítur marengs á að hafa.
Oft verða kökurnar harðar, með hörðum lakkrís eða fletjast út í ofninum. Ástæður fyrir því geta verið gamall lakkrís, of mikið bakaðar og of lítið þeyttar eggjahvítur
| Hráefnið er nú ekki mikið. Allt gífurlega "heilsusamlegt" samt. Endilega gerið bara kökurnar litlar ! :) |
| Þeytingin skiptir miklu máli. Ég þeyti eggin+ljósa púðursykurinn í tæpar 10 mínútur í handþeytaranum já. . . seriously. ég á ekki hrærivél |
| þetta á að vera stíft. Vel á að mótast í marengsinn eftir þeytarann og koma fallegur toppur á marengsinn þar sem þú tekur þeytarana uppúr |
| Lakkrísbitum og súkkulaði skellt ofan í marengsinn |
| Mjög mikilvægt að leggja þeytaranum þegar þessu er blandað saman. Notið sleikju eða sleif og veltið þessu hægt og rólega saman |
| vel blandað... þá er bara að.. ? |
3 stk eggjahvítur
200 gr. ljós púðursykur
150gr. súkkulaði saxað
1 poki lakksískurl
Eggjahvítur og púðursykur þeytt vel, lakkrískuklið og súkkulaði blandað varlega saman.
Bakað við 150°c í 15 mín.
(athugið að ef kökurnar eru stærri, þá lengist að sjálfsögðu bökunartíminn)
(athugið að ef kökurnar eru stærri, þá lengist að sjálfsögðu bökunartíminn)
Gerir ~70-75 stk
gjörið svo vel :)
0 ræðumenn:
Sendu inn athugasemd
Ragna.is er matarbloggsíða sem allir geta notið og notað
Veljið Anonymus ef þið eruð ekki með heimsíðu, gmail eða annað til að skrá ykkur inná. Vinsamlegast kvittið svo undir nafni :)