Fékk þessa uppskrift lánað hjá Mörthu Stewart, hinni einu og sönnu...
Ég er búin að panta mér cupcake bókina hennar og er hún væntanleg í byrjun október.
En... ég GAT ekki beðið. Fann þessa uppskrift því á netinu.
Þessi cupcake uppskrift er tiltölulega fitulítil (aðeins 3 msk af smjöri í henni). Ég auðvitað eyðilegg það alveg með því að setja SMJÖRKREM ofan á kökurnar... en viljið þið vera eitthvað on the healthy side, þá myndi ég bara setja glassúr eða rjómaostakrem.
Þetta byrjar yfirleitt alltaf með skál af þurrefnum.
En hér kemur twist...
Setja kakó í skál
Setja smjörið útí kakóið
og hræra?!
já, hræra og búa til svakalega leðju (skv uppskriftinni á þetta að auka kakóbragðið)
Eggi, eggjahvítu vatni og léttsúrmjólk er svo bætt útí
síðan er að vona það besta... ég átti ekki von á því að þetta myndi enda vel þegar deigið leit svona út
En ... viti menn! smooth and nice
kakóblöndunni er hellt út í þurrefnin og ... því hrært saman
Blöndunni er hellt í cupcakes form og ath, það er naaauðsynlegt að kaupa svona cupcake-pan..
já!
nauðsynlegt
(uppskriftin er fyrir 12 kökur, ég gerði tvöfalda)
Fyllið formin aðeins ca hálf (2 stórar msk í hvert form)
Baka í ofninum og taka út þegar þær eru bakaðar... Sjáiði þessa þarna með gatinu í ? jábbb... hún var tilbúin :)
Skreyta með kremi
mmmm!!!
Setja skraut ofaná
jeeeeeiiii
Uppskrift:
gerir 12 stk
3/4 bolli hveiti
3/4 bolli sykur
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
6 msk kakó
3 msk smjör
3 msk vatn (ekki kalt)
6 msk léttsúrmjólk (í hallæri má nota venjulega súrmjólk en þarf þá að bæta smá mjólk við)
1 stórt egg
1 stór eggjahvíta
Aðferð:
sjá að ofan með myndum
bakist í 20 mínútur á 180°C eða þar til prjóni sem stungið er í miðju einnar kökunnar kemur hreinn út
Krem - uppskrift
fyrir 12-24 kökur
fer eftir því hvað þið notið mikið krem
3/4 bolli smjör
3 2/3 bolli flórsykur
2-3 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
þeytið smjörið í 2-3 míntútur, bætið flórsykri við og þynnið aðeins með mjólk þar til þið fáið rétta þykkt.. þeytið svo fram í rauðan dauðan.. (5 mín amk!)
Ég bætti rauðum gel matarlit frá Wilton útí kremið og sprutaði svo á kökurnar með sprautupoka og stjörnustút...
Ofan á kökurnar stráði ég annars vegar lituðum (rauðum) sykri og hins vegar marglitum kúlum.
Kökurnar slógu í gegn á næturvaktinni. Meira að segja hörðustu karllæknarnir brostu yfir girnilegum, góðum og BLEIKUM cupcakes :)
Ég er alvarlega að hugsa um að skipta um starfsvettvang bara svo ég geti unnið með þér og fengið svona gúmmilaði í vinnunni :)
SvaraEyðakv. Mattý
Já takk fyrir mig...ég er enn með góða bragðið í munninum viku síðar :**
SvaraEyðakveðja Þóra
Ég er búin að gera þessa uppskrift mörgum sinnum og hún vekur alltaf mikla athygli.
SvaraEyðaþessi heimasíða er í miklu uppáhaldi hjá mér
kv Lilja
Very nice post,i was searching such post for a long time,thanks for sharingpharma ebooks
SvaraEyðaBúin að googla fram og til baka og auðvitað finn ég uppskriftina sem mig vantar hjá þér!! Hér eftir hefst leitin á ragna.is en ekki google!
SvaraEyðaEru virkilega 6skeidar af kakoi.
SvaraEyðaEr uppskriftin fyrir kremið rétt? 3/4 bolli smjör? Meinaru brætt smjör eða?
SvaraEyðaNeii alls ekki. Nema þú viljir gera glassúr :)
SvaraEyðaEr búin að gera þessa uppskrift aftur og aftur og þær klárast alltaf jafn hratt. Ég segi þess vegna bara takk fyrir mig og mína !!
SvaraEyðahvernig bolla ertu að nota? bara desilitramál?
SvaraEyðaNeinei. Bollar eru önnur mælieining. Hægt að kaupa sér mál eða mæla 2.5 dl fyrir hvern bolla
EyðaGerði þessa uppskrift fyrir barnaafmæli og kökurnar eru alveg hrylllilega góðar og fallegar, en ég er ekki að elska mælieiningarnar, tvöfaldaði uppskriftina og finnst ekki skemmtiegt að títra 12 msk af súrmjólk eða 6 msk af smjöri. Finnst skeiðar alveg fáránleg mælieining á smjöri reyndar. Er svo mikil aðdáandi SI kerfisins að ég vil hafa allar uppskriftir í grömmum;) En frábærar kökur. Kv. Allý
SvaraEyðafaggi
Eyða