mánudagur, 31. mars 2008

1. dagurinn í verknámi




ó guð hvað hann gekk vel ! :)

Ég  fékk hjúkrunarfræðing til að fylgja sem einhverjir hefðu ekki fílað en eftir að hafa áttað mig aðeins á hvernig karakter hún er þá er hún alger snillingur og ekkert ólík mér ! :)
Hún henti mér bara af stað í að gera hluti sem ég hef ekki fengið að gera áður og jiminn hvað litla hjúkkan í mér var spennt og stressuð stundum :) 

verð nú að segja ykkur eitt af því sem ég er mest hrædd við í þessu starfi er að STINGA fólk :D það er örugglega af því að ég hef ekki gert það allt of oft. Subcutant jú, en þegar ég þarf að fara að gefa im (intra muscular) eða stinga á æðar á fólki þá horfi ÉG með skelfingu á stóru stóru nálina og beitta oddinn :) svo hugsar maður... shit, ég sprengi örugglega æðina sem ég ætla að draga blóð úr, eða setja æðalegg í.. ég fer örugglega í gegn, hvernig á ég a) vita hve langt ég á að setja oddinn inn? í hvaða halla á ég að hafa nálina? er þetta æð? er þetta sin? er þetta taug? jæks :)

Ég tók blóðprufur í dag og allt saman gekk þetta nú ansi vel. Mig langar að segja ykkur frá ÖLLU þessu merkilega sem ég sá og gerði í dag en ég þarf víst eitthvað að þegja yfir því sem gerist innan veggja LSH svo þið verðið bara að ímynda ykkur í hvaða ævintýrum ég er þessa dagana.


í kvöld er það ánægður hjúkkulingur sem fer að sofa :)
 til í að stinga hvern sem er ! 




SHARE:

2 ummæli

  1. Nafnlaus10:09 e.h.

    Gangi þér vel þegar þú þarft að fara að stinga í litla stubba...
    Ætlaði aldrei að hafast að finna æð hjá Viktori í dag og klúður hjá lækninum loksins þegar hann fann æðina...
    Öfunda þig sko barasta alls ekki hehe... :)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus11:59 e.h.

    þú negldir sko þessa blóðprufu ;)

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig