sunnudagur, 15. apríl 2007

Ragna í london

jæja... dvöl mín hefur verið svona aldeilis fín ! ! :D

verst er að það er bara einn dagur eftir, og þá þarf ég að fara heim aftur :/ búúúhúúú...
ég er sko aldeilis búin að æfa táraflóðið sem kemur þegar ég þarf að fara :( Skrítið... mér finnst eins og ég eigi heima hérna ennþá. Og það að fara " heim " sé að keyra heim í Weybridge og fara í herbergið mitt, fara svo út í garð og leggjast á sundlaugarbakkann. Molly litla sé heima og verði ofsa kát að fá mig til baka... ÆJ ÉG VIL EKKI FARA HEIM ! ! don't make me :(


fór til London í gær og náði að versla helvíti vel... er ekki ennþá búin að finna mér buxur sem virðast passa meira en passlega..
annars fór ég í Primark á föstudaginn og labbaði út með 3 poka og í þeim voru
ógeðslega margir hlutir ! :D ég segi það kannski seinna.. ég nenni ekki að rifja það upp hérna núna. Svo er ég búin að kaupa einhverjar gjafir :)

Græddi svaka á skóm fyrir sumarið. Var búin finna mér Ecco skó í Rvk sem kostuðu 11 þúsund en fann þá á 7 þúsund á Oxford street. ( smá gróði )

í dag fórum ég og Svenni svo í Bicester Retail Park. sem er RISASTÓRT outlet-búða-svæði.. og reyndar er þetta bara þorp !
ég fann mér kjól í Monsoon sem ég týmdi ekki að kaupa :( og 2 puma skó sem ég lét vera að kaupa :) Svenni sá um að versla bara í staðinn fyrir mig.
Á morgun ætla ég niðrí Oxford á meðan Svenni er að fljúga og versla allt það sem ég á eftir að kaupa ( eða á eftir að finna mér til að kaupa ! :) )

og veðrið ! ! ég þarf varla að byrja að tala um það :) HIMNESKT !
í dag var t.d. 25 stiga hiti og logn, þetta er örugglega betra veður en á nokkurntíman eftir að vera á íslandi í sumar ! ég veit samt ekki með brúnkuna.. það er ekki mikið um að maður verði brúnn í búðunum, ég ætla því bara að kaupa mér brúnkukrem á morgun ! haha

ég vona að þið hafið að gott á íslandi ( í kuldanum og að lesa undir próf )
ég tek svo lesturinn með trukki eftir helgi ! ( nenniði að minna mig samt á það ? )

jæja..


c ya !

*Ragna er að dreakka Breezer*
SHARE:

6 ummæli

  1. Nafnlaus7:00 e.h.

    Hér er nú 10 stiga hiti og heiðskýrt. Vertu bara áfram þarna í mollunni og ógeðisveðrinu!

    Nei ég er EKKERT BITUR!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus7:03 e.h.

    Ohh beiglan þín...bannað að tala um veðrið... varð alveg illt af öfund að lesa þetta hjá þér... sérstaklega því mér langar alveg hræðilega út!! En annars gangi þér vel í verslunarleiðangrinum á morgun.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus8:31 f.h.

    Komdu með smá sól með þér..
    Gísli bró ætlar að senda mér smá frá dk og ef þú sendir okkur smá frá uk þá verður sjúklega gott veður hér :D

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus9:54 f.h.

    Góða ferð heim ;)

    SvaraEyða
  5. Ég vil fara í Primark!! Búhúhú :(

    Ohhhh hvað ég sakna London.

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus7:08 f.h.

    Gleymdu ekki vasaklutnum :P

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig