fimmtudagur, 19. apríl 2007

Profalestur

jæja.. nú er hann formlega hafinn...
er búin að kaupa flatkökur, létt og lagott, létt hangikjöt, banana og skyr.is og fylla ískápinn hérna upp í Eirbergi af því...
kaffikanna nr 3 í dag er farin af stað og ég skrifa og skrifa niður glósur fyrir Fósturfræði... vúhú !

kl 5 í dag er ég að fara með familíunni á "Laddi 6-tugur" í boði múttu og pabba... ég er víst orðin of gömul fyrir sumargjafir ... DEM



svona líta svo glósurnar út ... ég er orðin ansi öflug í að klippa út myndir og puðra þeim inní þar sem við á :D
vonandi á þetta eftir að létta mér lesturinn þegar ég þarf að fara að læra þetta utan að ...

kveðja

Ragna Eirbergsrotta :D
SHARE:

3 ummæli

  1. Úff sit einmitt sveitt hérna yfir bókunum! Og ég sé ekki betur en að við séuð með sömu bók og þið í fósturfræði, glósurnar þínar eru klárlega glæsilegra en mínar ;)

    Og já, fór einmitt með mömmu og pabba á Ladda 6-tugann fyrir ákkúrat 2 vikum, það var rosa gaman :) Have fun!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus9:27 e.h.

    Djöfulsins metnaður er í þér kelling :) Gleðilegt sumar :D
    Kv. Helga Reynis, sem er að reyna að gera allt nema að læra...:S

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus9:22 f.h.

    gangi þér vel:)

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig