mánudagur, 23. mars 2009

Mánudagur enn og aftur...

Ég satt að segja er farin að gleyma að blogga ansi oft og hef ekki hugmynd af hverju. Ætli það megi ekki kenna Vinabókinni um. 

Helst í fréttum er að ég ákvað enn og aftur með ekkert löngum fyrirvara að fara norður um helgina þar sem að Viðar var ekki að koma og er heldur ekki að koma næstu helgi og mér finnast 3 vikur ansi langur tími apart... Í kaupæti hitti ég Arnar Smára og er að gera mitt besta að reyna að venjast þeim pakka smá saman. Þið sem vitið það ekki þá á Viðar 6 ára son sem býr á Akureyri með mömmu sinni og stjúppabba sínum. Ég er nú afskaplega lítið að skipta mér af þeim feðgum en fæ svona að hanga með prinsunum og skemmti mér satt að segja alveg ágætlega við það, reyni kannski helst að sjá um að þeir fái að borða og sofni snemma... :)  þ.e.a.s Arnar sofnar snemma og Viðar virðist alltaf sofna á sama tíma og sonurinn svo að ég er þá ein eftir vakandi í kotinu... Þar að læra að nýta mér það aðeins betur :) haha

annað er svoldið stórmerkilegt fréttum... Unga stúlkan (prinsessan) er við það að hefja sambúð! já, og auðvitað er það með norðan-piltinum sínum og ætlar hann að flytja hingað í Stubbaselið með allt sitt dót (sem er án efa allt of margt til að komast hingað inn) sem nýtist örugglega í eitthvað gott... Eins hjónarúm (asnalegt nafn!), flatskjá í stofuna, heimabíókerfi og svona smotterí sem mig hefur alltaf vantað... Hann á meira að segja straujárn sem er meira en ég get sagt þar sem bróðir minn rændi mínu eðal-straujárni (990 kr í RL) til að vaxa brettið sitt (?)... Ég hef nú ekki grátið þann missi síðar heldur forðast enn sem áður að skíta út föt sem þarf að strauja eða læt mig hafa það að ganga í fötum aðeins krumpuðum ;)

Annað er í fréttum... Látum okkur sjá
já,
ég er byrjuð í síðustu 2 vikunum í skólanum. Núna er ég í stjórnun þar sem ég á að stjórna verkefnum og skipta á milli sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á B-7 og ekki má ég gleyma að forgangsraða, skipta eftir færnisviðum, verksviðum, ekki láta fólk gera of mikið eða gera of lítið OG svo framvegis og svo framvegis... jú ! ekki má ég gleyma að úthluta mér verkefnum líka!

Um helgina ætla Ma og Pa og Jobbi litli að koma og vera hjá mér. alls herjar make-over verður gert á íbúðinni og reynt að hliðra til því sem hægt er til þess að koma einhverju af dótinu hans Viðars fyrir sem er væntanlegt fyrr en síðar :) Nánar um það í næstu viku ...

Afskaplega þætti mér vænt um nokkur komment þó að ég biðji ekki oft um þau.

kv
Ragna 

SHARE:

11 ummæli

  1. Nafnlaus8:18 e.h.

    Hlakka til að koma að sjá íbúðin eftir make-over-ið :) Knús á þig sæta mín :)

    Hildur

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:53 e.h.

    held hann eigi líka ryksugu. og pott og pönnu auk straujárns. þú verður í fíling. svo geturðu lesið haug af bókum því hann sofnar svo snemma. en myndin verður að fá pláss fyrir ofan sófann. fyrir ofan sófann sko.
    arnar

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus11:10 e.h.

    Spennandi tímar frammundan og þið standið ykkur án efa vel í sambúðinni :)
    Pínu skrítið að hugsa til þess að þú sert bara farin að búa með kalli sem ég hef hitt 1x...
    man ekki eftir að ég hafi samþykkt hann.. haha
    Hlakka til að sjá þig/ykkur á laugardaginn.

    knús Árún

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus11:20 e.h.

    ég les alltaf bloggið þitt :)
    Stendur þig eflaust vel á B7...góða skemmtun í stjórnun :)

    kv, Tinna

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus11:42 e.h.

    Úllallla..... fullt af spennandi hlutum á næstunni hjá þér skvís:-D Ég les alltaf reglulega og sakna þess mikið þegar þú geymir það í nokkra daga að blogga:-D

    Katrín Valdís

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus12:59 f.h.

    hey, ertu að fara að búa og ég hef aldrei hitt manninn!?!?

    irb

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus3:33 e.h.

    Líst vel á þetta hjá þér. Veit að þú átt eftir að hafa góða stjórn á stelpunum á B-7
    kv. Solveig

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus11:05 e.h.

    spennandi tímar framundan hjá þér ;)
    knús í hús,
    Hrönn ;p

    SvaraEyða
  9. Nafnlaus6:19 e.h.

    Já ég hlakka til að kíkja á ykkur þegar ég verð næst á ferðinni!
    Kv Þorbjörg

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus8:51 e.h.

    Blessuð:-)

    Mér skilst að þú hafir tekið einhverjar myndir af árshátíðinni í seinustu viku. Náðirðu einhverjum góðum myndum, ef svo er hvort þú gætir sent mér þær?:-)

    Svo held ég að Arnari langi nú bara í þessa mynd af lilla bro og myndi sóma sig vel fyrir ofan sófann hans...senda myndina bara í Kleppsveginn....hehe;-)

    Takk annars fyrir að hugsa vel um strákinn minn (Arnar S.)
    kv. Signý Berg

    SvaraEyða
  11. þessi mynd sko :) Arnar má sko sannarlega eiga hana, held það sama og þú. Honum lúmskt langi í hana.

    Ég er ekki ennþá búin að skoða myndirnar frá Árshátíðinni en ég skal koma þeim til þín ef einhverjar eru flottar. Þær voru samt mjög dökkar eða hreyfðar eftir því sem ég man.

    já og það var nú lítið, þið eigið skemmtilegan strák. :)

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig