öldrun var bara ágæt fyrir utan ýmislegt eins og gengur og gerist.. Sáttust var ég kannski við að fá Gullu (hjfr) í Vík sem sérfræðikennara þar sem að að vera með nema er hluti af hennar diplómanámi í hjúkrun.
Viðar kom á fimmtudagskvöldið og ég var að vinna þá... svo að ég fékk smá kúr fram á föstudag. Fórum síðan austur eftir síðasta umræðufundinn í öldrun og veðrið fyrir austan Skóga var alveg snarkolvitlaust... stikurnar á veginum sáust ekki nema af og til og mikill vindur var sem gerði förina yfir ísilagðan veginn ekki spennandi. Við virðumst hafa sloppið í gegnum bylinn því að bílar sem voru á ferð hálftíma síðar voru að gefast upp í kófinu og endaði kvöldið með útkalli björgunarsveitarinnar og litla björgunarleiðangra að sækja fólk úr bílum sem höfðu gefist upp eða fólk sem hafði einfaldlega sjálft gefist upp.
Á föstudaginn kíktum við familían á Ströndina (f utan þráinn sem var fenntur í kaf hjá Pétursey) Fylgdumst við með Bessa keppa í Idol og fukum svo heim.
Helgin fór í það hjá Viðari að flísaleggja útidyraganginn (gulbrúnu hrjúfóttu flísarnar eru farnar.. *hneigjasig*) og pabbi gerði við bílinn hans Viðars í staðinn. Ég var meira fyrir og með uppsteyt auk þess sem ég gerði verkefni í öldrun, klæddi mig upp í bjsv búning og stjórnaði bílum á bílastæðinu við kirkjuna í Vík við útförina hjá Jóni Þóri heitnum
Þegar við lögðum af stað til Reykjavíkur hringdi ég á eldsmiðjuna og pantaði pizzu.. það passaði jú alveg, 2 tíma bið og við fengum sms um að 7 mínútur væru í pizzuna þegar við vorum að koma miklubrautina inní bæinn :)
hressandi ! :)
Byrjaði daginn í dag á því að stuða Hermann, Blása í Önnu og bjarga litlu barni sem brjálaður Chicagobúi átti..
vikan óráðin fyrir utan vinnu á slysó og mat hjá Döggu frænku
skemmtilegt :D
takk fyrir síðast. Er ekki fjör að stuða Hermann :o)
SvaraEyðaKv. Solveig