mánudagur, 22. september 2008

mánudagur...

flogin heim frá akureyri, lenti rétt rúmlega 10 í morgun og fór í skúlen. 
Hefði nú kannski helst óskað þess að hafa bara ekkert farið norður en ég sé ekki fram á ákvarðanir annarra fyrirfram og sérstaklega ekki hjá þeim sem ég hef ekki nokkur völd yfir. 
böggandi samt að ákvarðanir annarra geti haft svona mikil áhrif á mig... bara ef þið vissuð hvað ég get orðið leið yfir því :(

ferðin var kannski ekki 100% waste of time... Ég fór víst í 30 ára afmæli hjá Önnu og set inn myndir af því seinna, svo eldaði Viðar (já þetta er komið á veraldarvefinn) svaka pastarétt og hvítlauksbrauð og det hele  ! sá getur sko verið stolltur :) 

mikið að gera í vikunni...

verknámið á B7 hefst á morgun og verð svo að vinna á slysó á miðvikudag og fimmtudag. Sem betur fer er ég í verknáminu í fossvogi svo að ég ætti að geta mætt á réttum tíma í vinnuna og vinna tvöfalt á mið og fim. Af fenginni reynslu ´þa er það alger DAUÐI á meðan maður er í verknámi því að einbeitingin er þarf alveg að vera 100% allan daginn í verknáminu því að þar er verið að prufa okkur og láta okkur læra nýja hluti. Ekki skánar það að vera ennþá í aðlögun á slysó :) en henni líkur á fimmtudaginn svo að eftir það er ég on my own ! :) 4 vaktir í aðlögun ? er það ekki nóg ? haha

Nýjustu fréttir er að ég seldi mig á föstudaginn... salan hefur formlega farið fram og kostaði ég 2 árskort í baðhúsinu sem gerir 91 þúsund krónur í sparnað fyrir mig og í staðinn fá þau að eiga mig og minn árangur með húð og hári í svipaðan tíma. 
Ég skal segja ykkur meira þegar myndirnar og greinin verður tilbúið. 

vei vei :) 

fínt fyrir fátækan námsmann sem eyðir of miklu í gagnslausa flugmiða :) 


SHARE:

1 ummæli

  1. Nafnlaus11:33 e.h.

    Hehe... þú hefur náð samkomulagi við Lindu P :)

    Eins og ég sagði við þig þá finnst mér þetta bara flott hjá þér að gera þetta og vonandi verðuru bara hvattning fyrir aðra :)

    Allt of langt síðan við höfum hisst, látum rætast úr því fljótlega...

    Knús í klessu :)

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig