miðvikudagur, 16. maí 2012

kryddjurtaræktun 2012

fer vel af stað í ár.
Nokkuð þröngt er orðið um plönturnar í forsáningarbakkanum og satt best að segja bjóst ég ekki við að þær yrðu svona stórar áður en ég myndi setja þær út í júní. Er að velta því fyrir mér hvort ég ætti að taka svalapottana inn til að umpotta og prikla í þá og hafa þá inni þar til í júní þegar veðrið verður vonandi orðið stabilla og hlýrra. Eina vesenið við það að pottarnir eru stórir og fyrirferðamiklir og ekki mikið stofustáss :)

Basilikan er mjög falleg og stór og er ég farin að geta notað blöð af henni strax. Svo virðist sem að fræin sem Litla Garðbúðin er að selja séu kraftmikil og góð og upp kemur planta af hverju fræi að mér virðist :)




Mig langar einnig að benda ykkur á að pottarnir sem ég keypti í fyrra til að hengja á svalahandriðið og seldust upp á engum tíma í IKEA eru komnir aftur í IKEA. Hef ekki ennþá séð eða fundið betri útfærslu fyrir potta sem hanga framan á svölum þrátt fyrir þónokkra leit. 

Mynd frá 2011 

Það er ekki í boði fyrir mig að vera með potta inni á svölunum enda svakalega lítið pláss þar eins og þið sjáið. En þá er máli að nýta plássið vel og gera allt mjög kósí :) 




SHARE:

4 ummæli

  1. Nafnlaus8:23 e.h.

    nei nú vil ég fá blogg!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus9:00 e.h.

    hefurðu fengið lús í einhverja af plöntunum ? Var með basiliku og oregano í góðum fílíng sem fylltist allt í einu af lús...

    SvaraEyða
    Svör
    1. já. því miður varð allt ónýtt í fyrra af lús. Þá var ég með aðkeyptar forræktaðar plöntur.
      Var ráðlagt að prufa þaranæringu og blöndu af rauðspritti og grænsápu. Virkaði til að minnka lúsina en ekki næginlega til þess að ég borðaði eitt lauf af kryddjurtunum í viðbót.
      í ár forræktaði ég allt sjálf og virðist 7-9-13 hafa sloppið við lús.
      Að gefnum ráðleggingum henti ég öllu frá í fyrra og skrúbbaði alla potta upp og niður til að reyna ða koma í veg fyrir þetta í ár.

      Eyða
  3. Nafnlaus9:43 e.h.

    ok, ég held ég geri það líka. Basilikan var keypt tilbúin en oreganoið forræktaði ég. takk fyrir hjálpina :)

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig