já...
ég hló ekkert lítið þegar ég las frétt á Vísi.is í kvöld
--> Lesa frétt
Leiðindar mál og allt það..
en síðan hvenær er Sjúkrahús á Kirkjubæjarklaustri !
stór skemmtilegt líka að sá sem skrifar þessa frétt er ekki viss hvort að hann eigi alltaf að skrifa "Kirkjubæjarklaustur" eða "Klaustur" og skiptist því á því að skrifa hvortveggja ... -TIL SKIPTIS
bendi ykkur líka á að lesa fyrsta kommentið fyrir neðan fréttina .. ég skil þetta ekki???
föstudagur, 17. ágúst 2007
fimmtudagur, 16. ágúst 2007
Blogg...
Er í vinnunni og enginn bjölluhljómur... Hvað á maður þá að gera ?
blogga? iiijú :p
Fátt í fréttum nema að Jobbi litli er hrókur alls fagnaðar á Mánabrautinni enda skottast hann um allt húsið svo kátur að annað eins hefur maður ekki sést. Hvergi vill hann þó liggja nema ofan á gallabuxunum mínum á gólfinu eða í körfunni sinni með bol af einhverju til að kúra hjá. Hann er óttalegt skinn þetta grey, örugglega svoldið erfitt að vera allt í einu svona lítill og svona óendanlega einn...
Helgin er þéttplönuð á annað borð.
Síðasti dagurinn minn á Elló er á morgun og er ég búin kl 12 á hádegi. Held þá að það sé best fyrir mig að reyna ða finna sem mest af eigum mínum sem finnast einhversstaðar í herberginu mínu, pakka því í tösku og henda því ásamt sjónbartinu út í bíl og taka stefnuna á Reykjavík. Með næturstoppi á Hellu þar sem ég verð með óspektir og skrílsgang á tjaldstæðum staðarins fram á ókristilegan tíma.
Laugardagurinn verður örugglega tekinn með örlítilli þynnku með "dass" af bömmer ( fer eftir því hvað skrílsgangurinn gengur langt ) og held áfram flutningum mínum í höfuðborgina. Ég hef heyrt að það verði svo alls herjar skemmtun í tilefni þess að ég muni loksins komast í menninguna og því verður öllu tiltjaldað í Sódómu til að sýna mér hvernig menningin er á svæðinu og er ég því gjörsamlega tilneydd til þess að láta mig ekki vanta á hana. Íbúð prinsessunnar ( ég þ.e.) er stödd miðsvæðis og þar sem að enginn nógu stór hljómleikastaður fannst í miðbænum sjálfum ákváðu menningar-haldarar að flytja stór-tónleikana á Klambratún/Miklatún sem setur íbúð prinsessunar á góðan miðjupunkt ( drykkjustað ) fyrir það að fara á tónleikana og rölta um í miðbænum.
Sunnudagur fer svo jafnvel í meiri þynnku en á laugardeginum með slatta af bömmer ( prinsessan á örugglega eftir að fá menningarsjokk ! ) en getur ekki staldrað lengi við bömmerinn og þynnkuna því að hún þarf að flytja inn dótið sitt, pakka því upp, til þess eins AÐ PAKKA ÞVÍ NIÐUR AFTUR. af hverju spyrja menn ?
jú..
Til Danmerkur er för hennar heitið snemma á mánudeginum að skoða danska "drenge" og smakka danskan Tuborg eftir of langt hlé ( Roskilde '05 )
Ég verð nú í öruggum höndum Árúna og Palla ( og Theu Mistar ) mestan hlutann af vikunni og get ekki BEÐIÐ eftir að hitta þau nú loksins !
Mánudagurinn fer samt örugglega í eitthvað rugl enda ætla ég að hitta ruglaða vinkonu mína hana Ninnu og gista hjá henni EINHVERSSTAÐAR í Köben. Sjáum til hvað ég verð góð að redda mér á dönskunni til að láta nágrannann hennar hleypa mér inn til hennar ...
Eins og Árún minnti mig á þá kem ég með stóra tösku og mörg Visakort... Ég ætti kannski að vera búin að kaupa baðhúskortið áður en ég fer út svo að ég hafi nú efni á því... Annars get ég aldrei farið að skokka af mér Tuborginn þegar ég kem heim!
Ég sagði ykkur aldrei frá síðustu helgi er það ?
var nú kannski ekki mikið merkilegt að gerast þar sem ég var að vinna alla helgina...
Einhversstaðar fann ég þó tíma til að syngja í brúðkaupsveislu í 2 tíma með Fúsa og fara svo á "barna"ball í Tungunni með Helgu Möller ... óborganlegt!
þetta endaði svo í Samlokum ( enginn svali þar á ferð ! ) heima þar sem að það var munchað aðeins áður en helstu bytturnar voru keyrðar heim.
jæja
komið gott...
enginn bjölluhljómur ennþá samt.. ;)

miðvikudagur, 15. ágúst 2007
þriðjudagur, 14. ágúst 2007
mánudagur, 13. ágúst 2007
fimmtudagur, 9. ágúst 2007
óh my...
ég ætti nú að hætta því að reyna að lofa bloggum hist og her, ég stend nefnilega takmarkað við þau loforðum :/
endaði svo ekkert að fara í ræktina en ég gekk í vinnunna og SKOKKAÐI alla leiðina heim þegar ég var búin kl 12 og er þrælmonntin með mig. Ég hefði kannski gengið leiðina heim ef það hefði ekki rignt svona allsvakalega.
Samviskan er þó rólegri fyrir vikið og ég verð að halda þessu áfram ... þ.e.a.s. að hreyfa mig. bara örfá kg eftir í design sólgleraugun.... það væri nú ekki amalegt ef þau næðust af fyrir dk ferðina síðar í mánuðinum þó svo ða það sé afar ólíklegt.. þau eru nefnilega nokkur. ( ég ætla samt ekki að hætta eftir þau ! ó seisei... þetta er allt of gaman! )
til að halda ykkur spenntum yfir síðasta hluta Þjóðhátíðar-ferðasögunnar set ég inn þessa mynd sem ég tók á sunnudagskvöldið

*knús*

miðvikudagur, 8. ágúst 2007
ó fagra þjóðhátíð frh
jæja
það er eins gott að ég pikki þetta inn núna áður en gamli karlinn hann Alzheimer nái í skottið á mér með þetta... já eða að vínandinn fari endanlega úr blóðinu og þ.á.m. allt það sem ég ætti að skrifa hérna..
Hvert var ég komin ?
já, sólbað og bjór á pallinum hjá Gauja frænda og Gústu. Þráinn og Haukur tóku líka nokkur vel valin Eyjalög á gítarinn ásamt því að læra Þjóðhátíðarlagið 2007. Mikið þóttu Gauja og Arnari vini hans frábær þróun á hlutverkum kynjanna þegar við Katrín stóðum með teikningarnar af tjaldinu mikla sem fékk afmeyjun sína þessa helgina og hófumst handa við að tjalda því í garðinum á meðan Strákarnir sátu með gítarinn og drukku meiri bjór. Ég og katrín tjölduðum þó tjaldinu af mikilli kunnáttu og reynslu og reyndum ekki að hugsa út í það hver mikið karlmennirnir hefðu getað klúðrað :D
jæja, eftir smá sólun kíktum við í Dalinn og fundum auðveldlega Rútuna og Strætóinn þar sem við þekktum fullt af fólki. Margir úr Vík og Klaustri voru þarna og gerði það enn skemmtilegra að vera þarna. Strætóinn fær alveg fullt hús vegna frumlegleika og það að hann sé kolsvartur, með kojum og svo setaðstöðu fyrir 12 manns. . . Utan á strætóinn kvittuðu svo margir fyrir komu sína með hvítum penna svo að það er smá sjarmur yfir honum núna :)
Kvöldmatur var svo borinn fram af heimilisfólkinu í Birkihlíð og var það kjúklingasúpa af BETRI gerðinni.. NAAAAMM! ( þarf endilega að pína uppskriftina af henni upp úr Ágústu) Eftir það varð ég að leggja mig aðeins vegna smá ölvunar og síðan stríluðum við katrín okkur upp í ljót útileguföt.... já, mér finnst bara ekkert flott að vera í gúmmítúttunum, fjallaferðapeysunni sem heldur vel á manni hita með myndavél hangandi um hálsinn, appelsínugulum pollabuxum, rauðri regnúlpu með alla vasa fulla af áfengi.. neih ! þetta finnst mér ekkert voðalega kúl en samt lífsnauðsynlegur hluti af stemmingunni þrátt fyrir allt !
Krakkarnir frá Klaustri og einhverjir Vík sameinuðust svo saman í hóp í brekkunni og tók undir með þeim sem komu fram (Hreim og Vigga, Lay low ( what was up with that? ) og svo Stebba Hilmars, Flugeldasýningin var svo frábært og mjög flott, þétt og með skemmtilegum rythma.
jæja... henti af mér pollabuxunum og jakkanum í hvíta tjaldið "Betustaðir" í Sjómannasundi og fór svo á ball á Brekkusviði með Á móti sól og Í svörtum fötum þar sem innkoma Svartra var ein sú flottasta sem ég hef séð á balli. Þeir komu allir huldir inn á svið en voru svo allir klæddir í búninga og Jónsi í Indiána búning með risastóran fjaðrasveig á höfðinu.
þegar ballið á stóra sviðinu kláraðist kl 5 fórum við katrín að huga að heimferð og húkkuðum okkur far heim í Bekkjabíl sem er líka ómissandi partur af "programmet"
jæja
ætla að fara að sofa...
sunnudags rapportið kemur á morgun, vona bara að ég nenni nógu snemma í ræktina áður en ég fer svo að vinna seinni partinn á morgun, annars kemur það bara eftir vinnu eins og þetta...
svo verð ég eitthvað að fara að gera í myndamálum ( snökt )

mánudagur, 6. ágúst 2007
ó fagra þjóðhátíð
jább... komin heim með allar tíu tær, tíu fingur og allt sem fór með mér út til Eyja, að undanskyldu því sem ég get engan veginn munað eftir yfir höfuð. jú einu týndi ég reyndar... Röddin mín týndist einhversstaðar í Herjólfsdalnum í gærkvöldi og vil ég biðja þann óprúttna náunga sem fann hana og skilaði henni ekki að skila henni STRAX!!
En hvar á ég eiginlega að byrja að segja frá þessu. Þetta var nú reyndar 3. þjóðhátíðins sem ég hef farið á ('03, '04. '07) svo að ég vissi nú eiginlega við hverju væri að búast... nokkrir bjórar drukknir, brenna, flugeldasýning, brekkusöngur og svo böll fram á morgun.
Ég, Haukur og Þráinn tókum flugvél frá Bakka kl 12 á laugardeginum og mér finnst að flugvélar sem taka svona fáa farþegar séu nú eiginlega of litlar til þess að maður geti flogið í þeim án þess að finnast sem þú sért að við það að detta úr loftinu hvað úr hverju... en jæja... þessar 6 mínútur nýttust mér ekki til að leggja mig, hætta að verða hrædd eða taka nema 3 myndir, allar af sama hlutnum... Þarna var ég komin með myndavélina um hálsinn og símann líka, alveg tilbúin til að takast á við Dalinn og allt sem honum myndi fylgja.
6 æsispennandi mínútum eftir að við tókum á loft ultum við 3 ásamt 5 öðrum spenntum Eyjaförum út úr skopparaboltanum ( flugvélinni ) og þökkuðum veðurguðinum sem festi allt vonda Þjóðhátíðarveðrið í Færeyjum þessa helgina því að í Eyjum var svo gott veður að ég hefði ekki einu sinni þorað að gera þær kröfur að biðja um það svona gott.
Katrín Valdís var eitthvað aðeins seinni á Bakka heldur en þrenningin og kom því með annarri vél en á meðan ákvað ég að hringja í Guðjón sem hefur verið titlaður "Gaui Frændi" eftir þessa ferð. Ég sagði honum að við hefðum hugsað okkur að kíkja í Dalinn og skoða aðstæður og tjalda kannski það... Við fengjum þó kannski að koma í garðinn hjá þeim ef að við værum ekki tilbúin að fórna nýja tjaldinu þangað. Hann leyfði mér þó ekki að velta því fyrir mér því að hann sagði okkur bara að tjalda í garðinum og EKKI fara í Dalinn... já ég er nú svosem alveg sammála því að það séu mörg vandamál úr sögunni við að geta verið í heimagarði. Hann meira að segja ræsti út Ágústu konuna sína til að sækja okkur á völlinn þaðan sem hún transportaði okkur 4 í fallega húsið þeirra og fórum strax að minnka alkóhólbyrgðirnar..
jæja... ég virðist vera komin með ADD þessa stundina og nenni engan veginn eða get klárað þessa færslu núna...
hún verður ða bíða dagsljóss á morgun :)
c ya ! :D

laugardagur, 4. ágúst 2007
Verslunarmannahelgin 200...
7!!!
góði guð, láttu mig lifa af þjóðhátíð...
smá upphitun í kvöld, ein hvítvín og 1 bjór, jáh, bara temmilegt...
spurning hvernig Palli á heiði hefur það enda þambaði hann heila hvítvín vegna þess að Siggi Gýmir tók 14 armbeygjur á EINARI....
kræst..
eyjar !! og ég á eftir að pakka niður !!!!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
©
Ragna.is