þriðjudagur, 23. júní 2026

Hægelduð svínasíða í mjúku brauði með meðlæti

 


Ég setti saman þennan matseðil fyrir útskrift fyriri 45 manns um daginn og hann sló svo rækilega í gegn að ég varð einfaldlega að deila honum með ykkur. 

Hægelduð svínasíða sem bráðnar í munni, mjúk heimabökuð brauð, ferskt rauðkáls-coleslaw og meðlæti.

Þetta er svona matur sem allir geta borðað! 

Hér er ég búin að skala uppskriftina niður í heimilisstærð, eina svínasíðu og meðlæti fyrir um sex. Það besta er að nær allt er hægt að undirbúa fyrir fram, svo þú getur notið dagsins í stað þess að standa í eldhúsinu.


Hægelduð svínasíða

Þú þarft:

- 1 svínasíða með beini og skinni, um 2,1 kg

- 1 msk salt

- 1 msk púðursykur

- 1 msk reykt paprika

- 1 tsk hvítlauksduft

- 1 tsk laukduft

- 1/2 tsk svartur pipar

- 1/2 tsk sinnepsduft (má sleppa)

- klípa af cayenne

- 1 laukur, gróft skorinn

- 2 til 3 hvítlauksrif

- 1 dl eplasafi

- 1 dl kjöt- eða grænmetissoð

- BBQ sósa (uppáhalds tegundin þín)

Aðferð:

1. Skerðu skinnið af síðunni og geymdu það, við gerum úr því stökka púru. Blandaðu öllu kryddinu saman og nuddaðu vel á kjötið, helst kvöldið áður og geymdu þá óhulið í ísskáp.

2. Raðaðu lauk og hvítlauk í botn á eldföstu móti, leggðu kjötið ofan á og helltu eplasafa og soði í botninn, ekki yfir kjötið. Hyljið vel með álpappír.

3. Eldaðu við 150°C í 3 til 4 klst, þar til kjötið fellur í sundur við minnstu snertingu (kjarnhiti um 90°C).

4. Togaðu beinin úr, þau losna nánast sjálf, og rífðu kjötið. Sigtaðu safann í botninum og fleyttu mestu fituna ofan af.

5. Veltu rifna kjötinu vel upp úr uppáhalds BBQ sósunni þinni og smelltu því í 220°C ofn í um 10 mín, svo jaðrarnir karamelliserist og verði klístraðir og dásamlegir.

Vilt þú útgáfu án BBQ? Slepptu sósunni og bleyttu rifna kjötið þess í stað með sigtaða steikarsafanum þar til það er súper djúsí 


Mjúk hamborgarabrauð

Mjúk hamborgarabrauð

Þessi brauð eru svo mjúk vegna þess að við notum hveitijafning, eða tangzhong, þar sem hluti af hveitinu er soðinn fyrst. Það heldur raka í brauðinu sem helst mjúkt í marga daga. Gefur um 10 brauð.

Hveitijafningur:

- 25 g hveiti

- 65 g vatn

- 65 g mjólk

Deig:

- 475 g brauðhveiti

- 50 g sykur

- 9 g salt (um 1,5 tsk)

- 7 g þurrger

- 1 egg

- 190 til 210 g mjólk, ylvolg

- 50 g mjúkt smjör

- allur hveitijafningurinn

Aðferð:

1. Hrærðu hveiti, vatn og mjólk saman í potti á meðalhita þar til það þykknar í þykkan graut. Kældu alveg.

2. Hnoðaðu deigið slétt og teygjanlegt, bættu mjúku smjörinu út í smátt og smátt, um 8 til 10 mín.

3. Láttu hefast þar til tvöfalt að stærð, um 1 klst.

4. Skiptu deiginu í kúlur, 95 g hver, og mótaðu þétt. Flettu kúlurnar svo aðeins út með lófanum svo þær verði meira eins og bollur. Raðaðu á plötu með bili á milli.

5. Láttu hefast aftur í 45 til 60 mín. Penslaðu með eggi og stráðu sesam yfir ef þú vilt.

6. Bakaðu við 190°C í 14 til 20 mín þar til fallega gyllt. Kældu á grind.

Finnst þér stundum of mikið gerbragð af heimabökuðum brauðum? Prófaðu að minnka gerið niður í 2 til 3 g og láta deigið þroskast í kæli yfir nótt. Þú færð mildara og dýpra bragð, og getur bakað þau að morgni.

Rauðkáls hrásalat


Rauðkáls-coleslaw

Þú þarft:

- 1/3 rauðkálshöfuð, fínt sneitt (um 300 g)

- 1 gulrót, rifin

- 1/2 rauðlaukur, þunnt sneiddur

- 1/2 epli, í strimlum

- 4 msk majónes

- 2 msk skyr eða sýrður rjómi

- 1 msk eplaedik

- 1 tsk sykur eða hunang

- salt og pipar

Aðferð:

1. Hrærðu majónes, skyr, edik, sykur, salt og pipar saman. Veltu öllu grænmetinu vel upp úr sósunni.

2. Best að láta standa í 1 til 2 klst, þá mýkist rauðkálið aðeins og bragðið jafnast. Smakkaðu til með salti og ediki rétt áður en borið er fram.


Borgarasósan

- 6 msk majónes

- 1 msk tómatsósa

- 1 msk fínt saxaðar súrar gúrkur og smá af leginum

- 1 tsk dijon eða venjulegt sinnep

- 1/2 tsk reykt paprika

- 1/4 tsk hvítlauksduft

- smá sykur, salt og pipar

Hrærðu allt saman og geymdu í ísskáp. Best að gera daginn áður svo bragðið jafnist.


Snöggsýrður rauðlaukur

- 1 rauðlaukur, þunnt sneiddur

- 75 ml edik

- 75 ml vatn

- 1 msk sykur

- 1 tsk salt

Hitaðu edik, vatn, sykur og salt þar til allt er uppleyst, helltu yfir laukinn og leyfðu að standa. Tilbúinn eftir um 30 mín og geymist í marga daga í ísskáp.


Að setja saman borgarann

1. Ristaðu brauðin létt og smyrðu borgarasósu á báða helminga.

2. Hlaðið heitu BBQ svínakjöti á neðri helminginn.

3. Toppaðu með rauðkáls-coleslaw, snöggsýrðum rauðlauk og nokkrum flögum af stökkri púru.

4. Lokið á og berið fram strax, með afganginum af coleslawinu á hliðinni.

Þetta er borgari sem á eftir að gleðja, hvort sem það er sunnudagssteikin sett í nýjan búning eða matarboð með vinum.

Ef þú prófar uppskriftina, deildu henni endilega með mér á Instagram @ragna.is eða taggaðu mig, ég elska að sjá útkomuna hjá ykkur!

Knús, Ragna

SHARE:

föstudagur, 29. maí 2026

Fiskibollur

Fiskibollur eins og amma gerði þær

Það er ekki til neitt heimilislegra en ilmurinn af nýsteiktum fiskibollum á pönnu á virku kvöldi. Þessar eru þessar klassísku gömlu og góð, alveg eins og amma gerði þær, mjúkar að innan og fallega brúnaðar að utan. 

Karrýsósan toppar allt saman og minnir mig á kvöldverð á æskuheimilinu  🐟

…sumir myndu eflaust vilja fá remúlaði eða brúna lauksósu og það má alveg líka! 


Vanalega eru fiskibollur gerðar úr hökkuðum fiskflökum en ég á ekki hakkavél og ég veit að margir eiga ekki heldur og þess vegna fór ég að gera þetta í matvinnsluvélinni og komst að því að það gekk svona líka vel! 

Þetta er ein af þessum uppskriftum sem þarf í alvöru að vera til á hverju heimili. Einföld, ódýr og gjörsamlega ómótstæðileg, og krakkarnir borða þetta upp til agna.

🐟 Uppskrift

Fiskibollur

  • 1 kg ýsuflök
  • 1 stór laukur
  • 100 gr hveiti
  • 100 gr kartöflumjöl
  • 3 egg
  • 2 tsk pipar
  • 2-3 tsk salt
  • smá hvítlauksduft
  •  mjólk, eftir þörfum

Karrýsósa

  •  1 laukur, fínt saxaður
  •  góður slurkur af karrý
  • 50 gr smjör
  • 50 gr hveiti
  • mjólk
  • 1/2 kubbur af kjötkrafti

Aðferð

Fiskibollurnar

1. Setjið laukinn í matvinnsluvél og saxið fínt.

2. Bætið hveiti, kartöflumjöli og eggjum saman við og mixið vel saman.

3. Bætið fiskinum útí ásamt salti, pipar og hvítlauksdufti og mixið þangað til deigið er orðið slétt.

Fiskibollur í matvinnsluvél

4. Ef deigið er of þykkt, bætið við smá mjólk. Ef það er of þunnt, bætið við meira hveiti. Deigið á að vera þægilegt að móta með skeið.

5. Mótið bollurnar með skeið og steikið á pönnu á miðlungs hita. Brúnið vel á báðum hliðum.

Steikja fiskibollur6. Setjið þær inní 180°C heitan ofn á yfir og undir hita í 15 mínútur til að gegnumsteikja þær. Á meðan gerum við sósuna.


steiktar fiskibollur

Karrýsósan 

Notið sömu pönnu og þið steiktuð bollurnar á. Allt þetta góða bragð sem er eftir á pönnunni fer beint í sósuna.

1. Setjið fínt saxaðan lauk á pönnuna ásamt góðum slurk af karrý og steikið saman.

2. Bætið 50 gr af smjöri útá og steikið áfram.

3. Bætið 50 gr af hveiti útí og steikið smá svona jafning.

4. Hellið mjólk útá og hrærið vel þangað til sósan þykknar.

5. Setjið 1/2 kubb af kjötkrafti útí og bragðbætið svo til með meira karrý ef ykkur finnst þurfa.

Karrýsósa

 Ráð

Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum, soðnu grænmeti og góðu rúgbrauði. Klassík sem klikkar aldrei.

Mér finnst líka gott að tvöfalda uppskriftina og frysta auka bollur, þá á maður máltíð til í frystinum þegar lítill tími er til kvöldverðar.

Verði ykkur að góðu! 🤍


Ef þið prófið þessa uppskrift, taggið mig endilega á Instagram @ragnab, ég elska að sjá ykkar útgáfur!

Ef þið viljið sjá hvernig ég geri hana þá getið þið skoðað það hérna á instagramsíðu Ragna.is 



Knús, 

Ragna ❤️















SHARE:

sunnudagur, 15. febrúar 2026

Daimterta

Ég hef lengi verið hrifin af þessari æðislegu Daimtertu og ákvað loksins að deila uppskriftinni með ykkur! 

Daimterta


Þetta er stórglæsileg terta sem sameinar léttan möndlukökubotn, silkimjúkt vanillusmjörkrem og  Daim-ganache ofan á. Hún lítur út eins og hún komi beint úr bakaríi en er alveg framkvæmanleg heima.

Tertunni er skipt í þrjá þætti: möndlukökubotnana, vanillusmjörkremið og Daim-ganache og ég leiði ykkur í gegnum hvert skref!


Daimterta

Möndlukökubotnar

  • 7 eggjahvítur
  • 400 g sykur
  • 250 g möndlur (hakkaðar)
  • 0,5 tsk salt

Vanillu smjörkrem

  • 7 eggjarauður
  • 150 ml rjómi
  • 1 vanillustöng
  • 100 g sykur
  • 250 g smjör, mjúkt

Daim-ganache

  • 100 ml rjómi
  • 200 g Daimsúkkulaðiplötur (frá Milka)
  • 10 g smjör

Að auki

  • 1 poki Daimkurl

Aðferð

Möndlukökubotnar

Forhitið ofninn í 175°C (með blæstri). Teiknið 23 cm hring í miðjuna á þremur bökunarpappírsblöðum og leggið hvert blað á bökunarplötu.

Þeytið eggjahvítur þar til þær verða froðukenndar. Bætið sykrinum smám saman út í á meðan þið þeytið. Haldið áfram að þeyta þar til marengsinn verður stífur og léttur. Saxið möndlurnar fínt í matvinnsluvél eða Nutribullet og blandið þeim og salti varlega saman við marengsinn. Setjið blönduna í sprautupoka og klippið endann af. Sprautið marengsnum í þrjá hringi eftir teikningunum.

Þið getið bakað tvo botna í einu. Bakið í um það bil 20 mínútur. Látið þá kólna alveg.

Vanillu smjörkrem

Setjið eggjarauður, rjóma, vanillufræ og sykur í pott. Hitið hægt og rólega á meðan þið þeytið stöðugt. Þeytið í um 10–15 mínútur, þar til kremið þykknar. Hellið því í skál, leggið plastfilmu yfir og kælið í ísskáp í 2 klst. eða þar til það er alveg kalt.

Þeytið mjúkt smjörið þar til það verður ljóst og létt. Bætið köldu vanillukreminu saman við og þeytið vel. Ef kremið byrjar að skilja sig, bætið þá við 0,5 dl af volgum rjóma.

Samsetning tertunnar

Takið einn möndlubotn varlega af bökunarpappírnum og leggið hann á kökudisk. Skiptið vanillusmjörkreminu í þrjá hluta og smyrjið fyrsta lagið á fyrsta botninn. Leggið næsta botn ofan á og endurtakið. Smyrjið síðasta lagið ofan á og kælið kökuna í 30 mínútur á meðan þið útbúið ganache-ið.

Daim-ganache

Hitið rjómann þar til hann er rétt undir suðumarki. Setjið mjólkursúkkulaði og smjör í skál og hellið heita rjómanum yfir. Látið standa í smá stund og hrærið síðan varlega í miðjunni með sleikju þar til blandan verður slétt og glansandi. Látið hana kólna örlítið. Hellið Daim-ganachinu yfir kælda kökuna. Stráið Daimkurli yfir.

Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram. Njótið!


Ef þið prófið þessa uppskrift, merkið mig endilega á @ragnab á Instagram — mig langar að sjá ykkar útgáfur!

SHARE:

mánudagur, 9. febrúar 2026

Auðveldar brauðbollur

Að búa til gómsætar bollur heima gæti varla verið einfaldara! Þetta er uppskrift sem ég elska að nota þegar ég vil vakna upp við ilm af nýbökuðu brauði — þú blandar bara deigið saman kvöldið áður, skerð í bita og bakar á morgnana. Ekkert mót, ekki langt ferli, bara einfölar og ótrúlega góðar brauðbollur. 😊

Þetta hentar sérstaklega vel um helgar þegar maður vill njóta þess að hafa nýbakað á morgunborðinu án þess að þurfa að vakna á óguðlegum tíma!



🍞 Uppskrift

  • ✦ 550 g hveiti (eða meira heilhveiti)
  • ✦ 150 g heilhveiti (eða spelt)
  • ✦ 545 g vatn
  • ✦ 1 pakki þurrger
  • ✦ 17 g salt

👩‍🍳 Aðferð

Kvöldinu áður

1. Blandaðu öllum innihaldsefnum saman þar til engir þurrir kögglar eru eftir. Látið deigið hvíla í 10–15 mínútur.

2. Bleytið hendur og togið deigið upp frá öllum hliðum og brjótið það yfir sig — einu sinni er nóg. Hyljið og látið hvíla í ísskáp yfir nótt (eða allt að 48 klukkustundir).

hnoða deig
Togið deigið upp og brjótið það yfir sig 


Daginn eftir ☀️


3. Hitið ofninn og bökunarplötu (eða pizzastein/bökunarstein/stál) í 230°C.

4. Losað deigið úr skálinni. Setjið á vel hveitistráð borð og skerið í bita. Ef þú vilt má velta bitunum upp úr blönduðum fræjum.

setjið deigið á hveitistráð borð

skera deig

bakið í ofni


5. Setjið bollurnar á forhitaða bökunarplötu eða bökunarstein, úðið létt með vatni og bakið, helst með gufu, þar til þær hafa náð þeim lit sem þú vilt.

6. Látið bollurnar kólna í að minnsta kosti 30 mínútur.

Brauðbollur
Dásamlegar auðveldar brauðbollur


💡 Ráð

Mér finnst gott að bæta smá súrdeigsafgöngum út í deigið til að gera þær enn betri, og einnig að setja „everything bagel" krydd eða fræblöndu yfir. Prófið ykkur áfram!

Njóttu! 🥖
Ef þið prófið þessa uppskrift, endilega taggið mig á Instagram @ragnab — ég elska að sjá ykkar útgáfur!

Knús, Ragna ❤️



SHARE:
Blog Design Created by pipdig