þriðjudagur, 23. júní 2026

Hægelduð svínasíða í mjúku brauði með meðlæti

 


Ég setti saman þennan matseðil fyrir útskrift fyriri 45 manns um daginn og hann sló svo rækilega í gegn að ég varð einfaldlega að deila honum með ykkur. 

Hægelduð svínasíða sem bráðnar í munni, mjúk heimabökuð brauð, ferskt rauðkáls-coleslaw og meðlæti.

Þetta er svona matur sem allir geta borðað! 

Hér er ég búin að skala uppskriftina niður í heimilisstærð, eina svínasíðu og meðlæti fyrir um sex. Það besta er að nær allt er hægt að undirbúa fyrir fram, svo þú getur notið dagsins í stað þess að standa í eldhúsinu.


Hægelduð svínasíða

Þú þarft:

- 1 svínasíða með beini og skinni, um 2,1 kg

- 1 msk salt

- 1 msk púðursykur

- 1 msk reykt paprika

- 1 tsk hvítlauksduft

- 1 tsk laukduft

- 1/2 tsk svartur pipar

- 1/2 tsk sinnepsduft (má sleppa)

- klípa af cayenne

- 1 laukur, gróft skorinn

- 2 til 3 hvítlauksrif

- 1 dl eplasafi

- 1 dl kjöt- eða grænmetissoð

- BBQ sósa (uppáhalds tegundin þín)

Aðferð:

1. Skerðu skinnið af síðunni og geymdu það, við gerum úr því stökka púru. Blandaðu öllu kryddinu saman og nuddaðu vel á kjötið, helst kvöldið áður og geymdu þá óhulið í ísskáp.

2. Raðaðu lauk og hvítlauk í botn á eldföstu móti, leggðu kjötið ofan á og helltu eplasafa og soði í botninn, ekki yfir kjötið. Hyljið vel með álpappír.

3. Eldaðu við 150°C í 3 til 4 klst, þar til kjötið fellur í sundur við minnstu snertingu (kjarnhiti um 90°C).

4. Togaðu beinin úr, þau losna nánast sjálf, og rífðu kjötið. Sigtaðu safann í botninum og fleyttu mestu fituna ofan af.

5. Veltu rifna kjötinu vel upp úr uppáhalds BBQ sósunni þinni og smelltu því í 220°C ofn í um 10 mín, svo jaðrarnir karamelliserist og verði klístraðir og dásamlegir.

Vilt þú útgáfu án BBQ? Slepptu sósunni og bleyttu rifna kjötið þess í stað með sigtaða steikarsafanum þar til það er súper djúsí 


Mjúk hamborgarabrauð

Mjúk hamborgarabrauð

Þessi brauð eru svo mjúk vegna þess að við notum hveitijafning, eða tangzhong, þar sem hluti af hveitinu er soðinn fyrst. Það heldur raka í brauðinu sem helst mjúkt í marga daga. Gefur um 10 brauð.

Hveitijafningur:

- 25 g hveiti

- 65 g vatn

- 65 g mjólk

Deig:

- 475 g brauðhveiti

- 50 g sykur

- 9 g salt (um 1,5 tsk)

- 7 g þurrger

- 1 egg

- 190 til 210 g mjólk, ylvolg

- 50 g mjúkt smjör

- allur hveitijafningurinn

Aðferð:

1. Hrærðu hveiti, vatn og mjólk saman í potti á meðalhita þar til það þykknar í þykkan graut. Kældu alveg.

2. Hnoðaðu deigið slétt og teygjanlegt, bættu mjúku smjörinu út í smátt og smátt, um 8 til 10 mín.

3. Láttu hefast þar til tvöfalt að stærð, um 1 klst.

4. Skiptu deiginu í kúlur, 95 g hver, og mótaðu þétt. Flettu kúlurnar svo aðeins út með lófanum svo þær verði meira eins og bollur. Raðaðu á plötu með bili á milli.

5. Láttu hefast aftur í 45 til 60 mín. Penslaðu með eggi og stráðu sesam yfir ef þú vilt.

6. Bakaðu við 190°C í 14 til 20 mín þar til fallega gyllt. Kældu á grind.

Finnst þér stundum of mikið gerbragð af heimabökuðum brauðum? Prófaðu að minnka gerið niður í 2 til 3 g og láta deigið þroskast í kæli yfir nótt. Þú færð mildara og dýpra bragð, og getur bakað þau að morgni.

Rauðkáls hrásalat


Rauðkáls-coleslaw

Þú þarft:

- 1/3 rauðkálshöfuð, fínt sneitt (um 300 g)

- 1 gulrót, rifin

- 1/2 rauðlaukur, þunnt sneiddur

- 1/2 epli, í strimlum

- 4 msk majónes

- 2 msk skyr eða sýrður rjómi

- 1 msk eplaedik

- 1 tsk sykur eða hunang

- salt og pipar

Aðferð:

1. Hrærðu majónes, skyr, edik, sykur, salt og pipar saman. Veltu öllu grænmetinu vel upp úr sósunni.

2. Best að láta standa í 1 til 2 klst, þá mýkist rauðkálið aðeins og bragðið jafnast. Smakkaðu til með salti og ediki rétt áður en borið er fram.


Borgarasósan

- 6 msk majónes

- 1 msk tómatsósa

- 1 msk fínt saxaðar súrar gúrkur og smá af leginum

- 1 tsk dijon eða venjulegt sinnep

- 1/2 tsk reykt paprika

- 1/4 tsk hvítlauksduft

- smá sykur, salt og pipar

Hrærðu allt saman og geymdu í ísskáp. Best að gera daginn áður svo bragðið jafnist.


Snöggsýrður rauðlaukur

- 1 rauðlaukur, þunnt sneiddur

- 75 ml edik

- 75 ml vatn

- 1 msk sykur

- 1 tsk salt

Hitaðu edik, vatn, sykur og salt þar til allt er uppleyst, helltu yfir laukinn og leyfðu að standa. Tilbúinn eftir um 30 mín og geymist í marga daga í ísskáp.


Að setja saman borgarann

1. Ristaðu brauðin létt og smyrðu borgarasósu á báða helminga.

2. Hlaðið heitu BBQ svínakjöti á neðri helminginn.

3. Toppaðu með rauðkáls-coleslaw, snöggsýrðum rauðlauk og nokkrum flögum af stökkri púru.

4. Lokið á og berið fram strax, með afganginum af coleslawinu á hliðinni.

Þetta er borgari sem á eftir að gleðja, hvort sem það er sunnudagssteikin sett í nýjan búning eða matarboð með vinum.

Ef þú prófar uppskriftina, deildu henni endilega með mér á Instagram @ragna.is eða taggaðu mig, ég elska að sjá útkomuna hjá ykkur!

Knús, Ragna

SHARE:

1 ummæli

  1. Nafnlaus11:24 f.h.

    Þvílíka veislan. Hlakka til að prófa þetta. Til hamingju með Davíð þinn

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig