þriðjudagur, 30. júní 2026

Pizzadeig úr geri

Hugsið ykkur, föstudagspizzan fyrir alla fjölskylduna getur auðveldlega kostað undir 2000 krónum. Auðveldlega!

Í þessari uppskrift er ein deigkúla að kosta ykkur ca 25-40 kr (það fer aðallega eftir því hvað hveitið kostar) og svo veljið þið bara áleggið sem ykkur langar í.

pizza

Í fyrsta lagi: ekki mikla þetta pizzadeig neitt of mikið fyrir ykkur. Mesta snilldin við það er að þið getið jafnvel útbúið það á miðvikudegi, svona í miðri viku þegar lítið stress er, og svo gert pizzu á föstudegi. Best er að gera deigið deginum áður, en það er líka hægt að gera það allt að 3 dögum fyrr.

Þetta er eins og pizzadeigið sem notað er á veitingastöðum, og þessi uppskrift er einmitt frá ónefndum veitingastað!  Það er teygjanlegt og hentar fullkomlega í pizzaofna, á grillið eða bara á plötu í venjulegum ofni.

Pizzadeig
Gerir 4 stk 12" pizzudeig
Ískalt vatn390 g
Hveiti (00 eða Manitoba) 600 g
Þurrger3 g (ein tsk)
Salt13 g

Já, þetta er ekki flókið! 

Aðferð

1
Allt er sett saman í skál og hnoðað í 7-10 mínútur. Deigið má vera örlítið klístrað, en ekki þannig að það festist við fingurna. Það á að vera ágætlega vel teygjanlegt.
2
Ég veit að 7-8 mínútur kunna að virðast langur tími, sérstaklega ef þú ætlar að hnoða í höndunum, en það er nauðsynlegt til að glútenið bindist og teygjanleiki fáist í deigið.
3
Skiptu deiginu niður í 4 jafnar kúlur og settu í bakka sem hægt er að loka eða plasta yfir. Sjáðu hér hvernig ég móta deigkúlurnar.
4
Láttu deigið vera í ísskáp í 1-3 daga, eða frystu það beint. Deigið hefast á þeim tíma sem kallast köld hefun og þróar með sér unaðslegt bragð sem kemur í ljós þegar deigið er bakað. 🔥
deigkúlurnar í bakka
Pizzadeig í bakka

Ekki bæta meira hveiti við. Ef deigið er mjög klístrað, láttu það standa aðeins og hnoðaðu varlega í höndunum áfram. Þú getur sett örlítið af olíu.
Stökkur botn í venjulegum ofni: Galdurinn er að hafa ofninn mjög hátt stilltan, helst nota pizzastein og setja plötuna í neðstu rimina í ofninum.

Stærðir til að miða við

Ef þið viljið hafa einhverja stærð á kúlunum til að miða við, þá er hér gott viðmið:

Stærð pizzu Þyngd deigkúlu
9"ca 180 g
12"ca 250 g
16"ca 340 g

Verði ykkur að góðu, og njótið föstudagsins! 

SHARE:

Engin ummæli

Skrifa ummæli

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig