laugardagur, 2. júní 2018
Kartöflugratín
Kartöflur, hvítlaukssósa, ostur!
Ég veit alveg hvaða kartöflurétt þið ættuð að gera með steikinni um helgina.
Þennan.
Kartöflugratín
fyrir u.þ.b. 6
4 bökunarkartöflur
3,75 dl rjómi
1,25 dl mjólk
2 msk hveiti
4 hvítlauksrif (rifin, kramin eða söxuð smátt)
1 tsk salt
nýmalaður svartur pipar eftir smekk (gott að hafa svoldinn slatta!)
1-2 bollar rifinn ostur
(einnig gott að setja ferskt saxað rósmarín eða timian)
Já. æðislegheitin eru ekki flókin.
Samsetningin er líka auðveld.
Takið bökunarkartöflurnar (skrælið ef þið viljið) og skerið þær í sneiðar og svo í minni bita, (eins og pizzusneiðar).
Blandið rjóma, mjólk, hveiti, hvítlauk, salti og pipar saman í skál hrærið saman.
Setið helminginn af kartöflunum í eldfast mót og hellið helmingnum af rjóma,hvítlauksblöndunni yfir. Skellið svo (varlega! ) restinni af kartöflunum útí og hellið yfir restinni af rjómblöndunni yfir.
Setjið álpappír yfir mótið og inn í ofn á 200°C
Ath að þetta gratín tekur langan tíma, þarf sjálfsagt að byrja á því töluvert á undan aðalréttinum í matnum þ.e.a.s. ef það stendur ekki til að gera lambalæri eða annað slíkt).
Eftir 50 mínútur takið þá álpappírinn af og setjið eins mikinn ost yfir og þið viljið (ég: mikinn), látið brúnast áfram í 10-15 mín
Ekki fá panic kast ef ykkur finnst þetta of þunnt þegar þið takið þetta útúr ofninum. Þetta þykknar aðeins við að standa og það er í raun nauðsynlegt að láta þetta standa í ca 10-15 mín áður. annars er þetta bara OF heitt !
Njótið :)
sunnudagur, 20. maí 2018
Túnfisksalat - það besta!
Já, ég ætla að vera svo kræf að segja að þetta sé besta túnfisksalat sem þið hafið smakkað.
Það er svo ljúffengt að fólk sem heldur því fram að það borði ekki túnfisk og hvað þá niðursoðinn túnfisk í túnfisksalati hefur skipt um skoðun eftir að hafa smakkað þetta! 😀
Ég hef gert þetta túnfisksalat svo vandræðalega oft að það er skrítið að ég hafi aldrei komið því verk að setja uppskriftina hér inn.
Raunar er ein túnfisksalatsuppskrift hér nú þegar en hún er allt öðruvísi og meira til þess að henda einhverju saman með nánast engri fyrirhöfn.
Þetta túnfisksalat er öðruvísi en öll önnur að því leitinu til að hér er ekkert majónes og í staðinn fyrir það er notaður sýrður rjómi og kotasæla.
Uppskrift:
3 egg
1 dós túnfiskur í vatni
1/2 rauðlaukur (eða 1 skarlottulaukur)
1 dós sýrður rjómi (% tala skiptir ekki máli)
1 lítil dós kotasæla (ef maður á stóra kotasæludós þá notar maður tómu dósina af sýrða rjómanum til að mæla magnið, eins og ég gerði hér sjá mynd)
Krydd:
hér gilda engar mælieiningar nema smekkur hvers og eins
Karrý
Laukduft
hvítlauksduft
Aromat
(stundum set ég líka lawry's og/eða paprikukrydd)
| Innihaldsefnin |
Aðferð:
-Sjóðið 3 egg og kælið, skerið í smáa bita
-Skerið laukinn, mjög smátt. (myndband hvernig það er gert er hér)
-Hellið vatninu af túnfisknum og brjótið hann upp í smáa bita
-ATH mikilvægt: Kryddið þetta saman áður en sósan fer útí.
-Blandið kotasælu og sýrðum rjóma saman við og hrærið saman.
| Setjið egg, rauðlauk og túnfisk saman í skál |
| Kryddið blönduna áður en sósunum er blandað útí |
| Hrærið vel saman kotasælu og sýrðum rjóma |
| psst. TUC kexið sem er með salt og pipar er fullkomin pörun með þessu salati |
þriðjudagur, 23. janúar 2018
Asískt núðlusalat
Flestir eru
vanir að fá sér núðlurétt en það kannast ekki margir við að elda eða borða núðlusalat. Þetta asíska núðlusalat er með
vissa skírskotun til Víetnam í hráefnavali og einkennist af hvítlauk, stökku
salati, mjúkum núðlum og gómsætum kjúkling sem toppar bragðið.
Þessi réttur er
fljótlegur og skemmtilegur í matarboð þar sem það þarf litla fyrirhöfn að hafa
fyrir honum, er ódýr, hollur og slær alltaf í gegn. Einnig hentar rétturinn vel
til þess að útbúa í nesti.
Öll hráefnin
fást í flestum stórmörkuðum fyrir utan Vermicelli hrísgrjónanúðlurnar, þær fást
í flestum asíubúðum.
Persónulega set
ég oftast meira af kóríander heldur en uppskriftin segir til um en það er
algerlega af því að ég elska kóríander. Einnig á ég það til að setja mikið
chilli í dressinguna ef ég vil hafa þetta sterkara en uppskriftin gefur upp.
Fyrir 4
Marinering fyrir kjúkling
2 kjúklingabringur skornar í tvennt
2 msk sojasósa
1/2 msk fiskisósa
1 msk limesafi
2 msk matarolía
2 skarlottulaukar saxaðir fínt
2 hvítlauksgeirar saxaðir fínt
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar
Salat
1 lítill iceberghaus
2 gúrkur
1 dl söxuð fersk mynta
1 dl saxaður ferskur kóríander
1 dl saxaðar salthnetur
Dressing fyrir salat
4 msk fiskisósa
3 msk limesafi
120 ml vatn
1 hvítlauksgeiri saxaður fínt
1/2 chilli saxað smátt (meira eða minna eftir smekk)
2 msk matarolía
| Skera kjúklingabringurnar í tvo jafnstóra hluta |
| útbúa marineringu fyrir kjúklinginn |
| útbúa dressingu |
| steikið kjúklinginn á vægum hita (annars brennur marineringin) útbúið salat á meðan |
| allt í salatið er skorið/saxað niður og sett í skálar |
| núðlur soðnar eftir leiðbeiningum, sigtaðar og settar ofan á salatið |
| Kjúklingur skorinn í sneiðar og settur ofan á núðlurnar |
![]() |
| dressingu hellt yfir |
Aðferð
1. Skerið
kjúklingabringurnar 2 í 2 jafnþykkarsneiðar hverja (4 sneiðar samtals)
2. Blandið
öllum innihaldsefnum fyrir marineringuna saman og þekið kjúklingabringurnar.
Látið standa í skál á borði í 1 klst.
3. Útbúið
salatdressinguna með þvi að blanda öllum innihaldsefnum saman í skál og hræra
vel. Gott er að gera dressinguna rétt eftir að maður marinerar kjúklinginn svo
að hún taki vel í sig bragðið af hvítlauknum og chilli.
4. Steikið
kjúklinginn á pönnu þegar hann er búinn að marinerast. Ekki hafa of háan hita
því þá brennur hvítlaukurinn. Snúið reglulega.
5. Á meðan
kjúklingurinn er að eldast í gegn skal sjóða núðlurnar eftir þeim leiðbeiningum
sem gefnar eru upp á pakkanum og skolið svo með köldu vatni.
6. Sneiðið
iceberghausinn í mjóa strimla, gúrkurnar í þunnar sneiðar, saxið kryddjurtirnar
og salthneturnar (Má vera búið að þessu áður og geyma þar til kjúklingurinn er
eldaður).
7. Þegar
kjúklingurinn er eldaður er best að skera hann í strimla.
8. Setjið
salatið saman í 4 skálar í þessari röð: iceberg, gúrka, mynta, kóríander,
núðlur, kjúklingabringa og salthnetur.
9. Borðið á
borð og hver og einn setur dressinguna yfir sjálfur. Reiknað er með ca 30-40 ml
á mann.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
©
Ragna.is


