(Ath að ég á lika uppskrift af stökkum Amerískum súkkulaðibitakökum hér)
Eins og með Kókoskökurnar, þá er þetta afskaplega fljótgerð uppskrift og að flestu leiti gerð eins og Kókoskökurnar
(ég nota sömu myndirnar hér og í Kókoskökunum... why? well... af því bara. Þetta er í raun of líkt að ég nennti ekki að mynda þetta tvisvar) :)
sykur og smjör þeytt saman |
lítur þá svona út |
eggi bætt við og þeytt smá |
blandan breytist þá svona og verður ljósari og léttari |
þurrefnunum blandað saman við |
kökurnar nýkonar úr ofninum... alltaf er það einhver sem stelur ser bita? ! ;) |
Uppskrift (gerir 20-22 kökur)
(1 bolli eru 2.5 dl)
115 gr smjör (við stofuhita)
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
1 egg
2 tsk vanilluextract (eða vanilludropar)
2 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 bollar súkkulaðibitar
Aðferð
-Þeytið saman sykurinn og smjörið í handþeytara og bætið þarnæst eggjunum saman við einu og einu i einu auk vanilluextracts.
-Setjið þurrefnin saman við, fyrir utan súkkulaðið og blandið vel saman. Hægt er að gera þetta í handþeytaranum eða með sleif.
-Blandið súkkulaðinu saman við með sleif.
-Rúllið deiginu með höndunum og mótið kúlur á stærð við golfkúlur og raðið 12 saman á plötu, sem er ósmurð og ekki með neinum smjörpappír (ekki fríka út, þær festast ekki við).
-Bakið við 180°C í 10-12 mín eða þar til þær eru búnar að fletjast vel út og orðnar brúnar í könntunum.
-Látið kólna aðeins og borðið með ííískaldri mjólk. :)
Punktar
-Bestu súkkulaðibitarnir fást í pokum í Kosti eða á Amerískum dögum í Hagkaup. Það er auðvitað hægt að nota suðusúkkulaði og brytja það gróflega niður
-Hægt er að bæta valhnetum útí
-Hægt er að bæta karamellukurlinu frá Nóa saman við
Hæhæ,
SvaraEyðaog takk kærlega fyrir þessa uppskrift :)
Ég gerði þessa og núna efast ég um að ég megi baka nokkuð annað á mínu heimili haha dásamlegar kökur og alveg mjúkar í miðjuni, ég setti reyndar m&m sem súkkulaði bitana og það heppnaðist bara vel.
Enn og aftur takk kærlega
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
SvaraEyðaGet èg sleppt púdursykurinn?
SvaraEyðaJá
Eyðafrábærar kökur
SvaraEyðaÞessar kökur festast samt við, notið bökunarpappír, alltaf.
SvaraEyða:)
Ég og fjölskyldan erum búin að gera þessa uppskrift mörgum sinnum og þær eru alltaf jafn góðar:) ;)🍪🍪🍪🍪🍪🤤🤤🤤
SvaraEyðaGlæsilegt uppskirft
SvaraEyðaHæ er að baka þessar og það er 1 egg en sco er sagt settu eggin eitt í einu?🤔 eins og þau seu fleiri en eitt?
SvaraEyða