Hægt er að gera þær litlar eins og smákökur en ég vil oftast hafa þær frekar stórar og dugir þessi uppskrift því bara í 6-8 tebollur hjá mér :)
Uppskrift:
3.5 dl hveiti
1.5 tsk lyftiduft
3/4 dl sykur
100 gr smjörlíki/smjör
1.5 tsk kardimommudropar
1 egg
1 dl mjólk
1 dl rúsínur eða grófsaxað suðusúkkulaði (eða 1/2 dl af hvoru)
Aðferð:
Setjið öll þurrefnin í skál og myljið saman smjörinu með höndunum.
Gott er að taka lúku fulla af hveiti og smjörmulningi og nudda 2 höndum saman til að ná mestu klumpunum úr. Að lokum þarf að blandan að líta út eins og mulið kex og ekki með stórum bitum af smjöri.
Hrærið saman eggi og mjólk þar til deigið verður samfellt.
Ath það er nokkuð þykkt !
Bætið rúsínum og/eða súkkulaði saman við
Setjið á plötu klædda bökunarpappír með 2 skeiðum. Það er í lagi að kúlurnar séu úfnar og ójafnar. Kökurnar renna töluvert mikið út, svo passið ykkur að hafa ekki of stutt á milli.
Mínar kúlur eru eins og mandarína að stærð.
Bakist við 180°C í miðjum ofni í ca 15-20 mínútur eða þar til að kökurnar hafa tekið nokkurn lit í könntunum og falla ekki saman ef þið bankið í þær með puttunum.
Ath, ef þær eru í dekkri kanntinum þá eru þær stökkari og það er það sem ég kýs sjálf
Þessa uppskrift er tilvalið að gera í miðri viku ef það koma gestir í kaffi einnig slá þessar alltaf í gegn í útilegum, lautarferðum sem og öðrum ferðalögum
Fljótleg og auðveld uppskrift
hæ ég prófaði þessa uppskrift, gerði kúlur eins og þú sagðir og þær voru svolítið úfnar en þær runnu lítið sem ekkert út, veistu hverju ég gæti verið að klikka á?
SvaraEyðakv. Svava:)
Ef það er alveg pottþétt að ekkert hafi gleymst þá hlýtur að vera að það hafi verið aðeins og lítil mjólk.
SvaraEyðaÉg myndi t.d. aldrei getað mótað kúlurnar með höndunum. Deigið er þykk deigsoppa.
Ætla að prufa þessa uppskrift bráðlega, lítur vel út:)
SvaraEyðaVar að gera þessar :) Þær eru rosalega góðar og einfaldar - fór reyndar alltof mikið af kardimommudropum óvart og kökurnar líða aðeins fyrir það.
SvaraEyðaEn fyrir byrjanda einsog mig þá er þetta alger snilld.
Ég er með þær meðalstórar og fékk 11 úr þessari uppskrift.
Besta síðan - er húkkt á henni núna í fæðingarorlofinu :)
Takk Ragna
Íris Fríða
Þessar eru í ofninum hjá mér núna, held reyndar að ég setti of mikið að kardimommudropum hehe :)En maður lærir af mistökum sínum ;) Hlakkar til að smakka!
SvaraEyðaVar að baka þessar, enn of heitar til að smakka en heppnuðust að mér sýnist alveg hreint frábærlega hjá mér. Líta rosalega vel út, nema ég átti reyndar ekki kardimommudropa svo ég notaði bara vanillu í staðinn :) Mjög auðveld og fljótgerð uppskrift.
SvaraEyða