mánudagur, 30. nóvember 2009

Foodblogs

Ég er með óstjórnandi áhuga á matarbloggum eða foodblogs...
Það er orðið þannig að ef ég fæ hugmynd að einhverju sem mig langar til að baka eða elda þá leita ég á matarbloggum að uppskriftum og les svo í gegnum hvernig matarbloggaranum gekk að elda, hvaða trix hann notaði, hvað hann ætlar að gera öðruvisi ef hann eldar eða bakar þetta aftur og enn frekast hvernig honum líkaði við loka afurðina. Með svona bloggum tengist maður matnum betur og ég fæ ennþá meira út úr því að elda hann og baka...

Ég hef örugglega deilt með ykkur uppáhalds matarbloggaranum mínum en það er Joy the Baker. Nýlega fann ég aðra konu sem bloggar og kallar sig Bakerella... áhugavert nafn :) þegar ég fór að skoða gamla pósta frá henni fann ég að þar var hvorki meira né minna eitt stykki bónorð á síðunni. Sjáið póstinn hérna!

lesið svo um það hérna hvernig allt umstangið fór fram í kringum bónorðið..

Næst á tilraunalistanum er að gera svona köku-sleikjóa eða cake pops... verst er að ég hef ALDREI séð sleikjópinna prik til sölu einhversstaðar... Það er annað hvort að panta þau frá US eða setja Viðari það starf að fara að borða svoldið mikið af sleikjóum...

þangað til næst

Prófstress-Ragna
SHARE:

3 ummæli

  1. Nafnlaus1:07 f.h.

    Allir að éta sleikjó!
    Kv. Solveig

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus9:27 f.h.

    er ekki einfaldast að setja Viðar í að borða sleikjó? honum þætti það ekkert leiðinlegt held ég :)
    Þorbjörg

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus2:02 e.h.

    Möguleiki að þetta sé til í Pipar og salt.

    Dagga

    SvaraEyða

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig