já og best að blogga aðeins áður en ég þarf að mæla BÞ hjá sjúkling í 15 skiptið í kvöld.
Mamma var í bænum í dag og við þræddum helstu verslanir bæði í Kringlunni og Smáralind... Eitthvað var ég ekki hress í dag frekar en í gær og fann mér EKKERT ... :(
Núna sit ég og bölva mér að hafa ekki keypt sápuna og handáburðinn í L'co.... sápubúðinni sem mig er búið að langa í síðan í síðustu viku, og ég sé líka eftir því að hafa ekki keypt nýja Coldplay diskinn.
Helgarplanið er aðeins að skýrast og er stefnan tekin á Húsavík/Ásbyrgi um helgina :) Kíkja á Mærudaga og þetta helsta sem hægt er að gera þarna fyrir norðan. Ég ætla samt ekki að keyra.. ó seisei nei. Ég ætla að taka prinsessuna á þetta og fljúga norður og til baka aftur. Reikna þó með því að við keyrum frá akureyri til Húsavíkur og gistum í tjaldi!
OK !
Ég er Semi-prinsessa :)
xxx
take care
Mæli eindregið með Coldplay disknum.. hann er æði.
SvaraEyðaGóða helgi krútt
flugið er bara ekkert mikið dýrara en keyrslan ef maður reiknar nú bara tímasparnaðinn líka með :P :)
SvaraEyðaBogga