fimmtudagur, 17. ágúst 2006

hvitingi

ég er að fara að falla inn í hópinn hérna á meðal íslendina, allur liturinn minn sem ég náði mér í í Englandi virðist vera farinn...
er þá bara brúnka í túpu málið?
úff...

hvað á að gera um helgina?? alveg ekki að meika það að ákveða mig þessa stundina, enda er það alger óþarfi! rææææt???
það sem er öruggt er að ég ætla uppeftir í Stíflisdal á morgun og dvelja á útihátíðinni Stífló 2006 um stund.
Er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort ég eigi að gista en það er ekki sjéns ða égfari að skríða í kalt og blautt tjald svo að frekar verð ég Edrú! (hana nú!) mar getur nú skemmt sér edrú er það ekki??? ://// jú, verð þá bara að verða leiðinleg, not my problem? :)))

á laugardaginn kemur til greina að
-verða áfram í stífló
-fara á menningarnótt
-fara í dagsfjallaferð með 4x3 á flugi
-gista einhversstaðar á fjöllum

skiljiði núna af hverju ég á erfitt með að ákveða mig? :) það er líka alveg lífsins ómögulegt að gera þetta allt eins og ég vildi helst hafa þetta.
auglýsi eftir klóni :)

kvöldskólinn er alveg að fara með mig, shit hvað þetta er leiðinlegt
bara 4 skipti eftir.
þa er ég búin að vera í þessu í 4 vikur! lifi ég það af þá ætla ég.... þá ætla ég... þá ætla ég...
æ veit ekkert hvað ég ætla að gera.. geri eitthvað sniðugt :)
Háskólinn byrjar svo 30. í einhverju kynningardóti og svo fyrir alvöru þann 4. september.

lítið að gerast í dag, reifst aðeins við bílasölumann.. guð hvað hann er EKKI að vinna vinnuna sína.
jú ég bölvaði ökumönnum í Reykjavík aðeins lika en ég ætla ekki út í þá sálma hérna enda verð ég nú barasta alveg bandill á að hugsa um það!

er þetta ekki komið nóg?

xx
SHARE:

Engin ummæli

Skrifa ummæli

Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)

Blog Design Created by pipdig