fimmtudagur, 29. apríl 2004

Fleiri myndir frá dimmission atriðinu okkar á nfmh.is
Við vorum svooo flottar !! :)
SHARE:
Skemmdarverk

Einhverjir óprúttnir náungar réðust á grey Trausta í nótt og settu á hann egg og hveiti.
Greyið er orðinn svo skelkaður á veru sinni hér í stubbaseli þar sem hann fær aldrei að sofa rótt að hann nær honum ekki upp ( snúningnum ) og er því orðinn ansi geðillur og upp á snúinn.
Ælta ég að benda öllum þeim sem liggja undir grun að sofa rótt því að ég mun leita hefnda :))))))))))))))))

hehe
SHARE:
Myndir eru komnar á netið hjá Matta sem var með okkur á dimmission daginn. Ragna sést nú ekkert voða mikið enda hverfur hún allataf á mannamótum í eitthvað bull
SHARE:
Góðan dag!!!
þessa vikuna er miiiiikið að gera!!!
ARgh og æ æ
og ekkert gengur upp eins og það á að gera.
Síðasti leikfimistíminn í gær.
steinsvaf yfir mig
úps
komst svo að því að ég er framleidd með topp sem vill alls ekki fara niður ef ég er með handklæði á hausnum í 15 mínútur og eina ráðið er að bleyta það allt aftur og passa sig á að setja helst ekki handklæði á hausinn.
Hún Ragna sem æltaði ekki að fara á Raularann neyðist víst til að skreppa þangað núna þar sem hljómsveitin var beðin um að spila nokkur lög í hlénu og verða núna ALLIR að mæta! :) skyldumæting! það verður líka ógeðslega gaman eins og alltaf er.
Og ég ætla að staðhæfa það hér og segi það satt að ég er EKKI að fara að keppa og myrði ég þann sem kemur með eina ásökun á mig í viðbót með það að leiðarljósi. Ég ætlaði ekki einu sinni að fara.
Svo er ég búin að plata Árúnu í sukkið og ætlar hún að koma með mér. verður voða gaman :)
Jæja, kominn tími a skóla.
C ya later
SHARE:

mánudagur, 26. apríl 2004

á heimasíðunni hennar Árúnar fann ég :
Það er líklegra að þú deyjir vegna fljúgandi kampavínstappa en banvænni könguló!
Vitiði... ég ætla ekki að taka áhættuna...

SHARE:
Einhverntíman kannski bráðum, en alls ekki núna. mun ég skrifa fylleríssögur helgarinnar.
Frá dimmiteringu og sumarbústaðarferð
Er núna að bíða eftir að geta sótt bróður minn aftur upp í GÍS (gítarskóli íslands) mikið verður gaman þegar hann verður kominn með bílpróf.
SHARE:

föstudagur, 23. apríl 2004

en samt !!!
GLEÐILEGT SUMAR!!!!!!!
Vona að það verði fullt af gleði og uppátækjum..

Sjáumst!
SHARE:
Jæja. ég er að fara að dimmitera eftir nokkra tíma.
ég hlakka svo til að ég held að ég geti ekki sobbnað. allavegana með firrildi í maganum og ekkert hrifin.
Er búin að afreka það að gera nokkuð af mér síðan í gær

Fór á Selfoss með Arnari Páli og kíkti aðeins við hjá strákunum mínum á kirkjuveginum og dró svo Fúsa greyið í göngutúr (Hann varð samt BTW ekkert veikur í þessum) og við löbbuðum með bjórinn í annarri og kítum svo á kvöldvöku í FSU þar sem hin magnaða söngkona Elva Dögg sló botninn í kvöldvökuna með söng og spili. Einnig kíkti við naggrísinn Nikulás við og sat þægur uppi á sviði. Örugglega diggasti stuðningsmaðurinn.
Eftir kvöldvökuna fór allt að stefna í óefni enda var kippan fljót að fara og kvöldið eitthvað blurry þaðan af. Fann samt út að Cranberry vodki og djús er helvíti góð blanda. Eða það held ég....
Núna er opnaður nýr pöbb á selfossi sem heitir Sportbarinn. Fór þangað með Magga mús og Fúsa krús... :) hehe rímar.
svo á Pakkhúsið, þar kostaði 500 inn. Slepptum því, enda fátæk og fórum á HM kaffi. en þar kostaði 700 inn!!! halló.
jæja. þá leit 500 kallinn skárri út.
Svona eftir á að hyggja vorum ég og fúsi orðin bara 2 þegar við fórum á pakkhúsið. veit ekkert hvað varð um Magga.......
Anyway... spyr fúsa á morgun...
Við komum saman inn á staðinn. og vorum bara 2 að dansa saman... en allt í einu var ég umkringd fullt af mönnum. án grín. með klípi og strokum og heila klabbinu... Hvað var málið. Fattaði það reydar ekki fyrr en söngvarinn sagði það. jújjú eg var EINI kvennmaðurinn á svæðinu. ARGH! mæli ekki með svona ástandi.
og Jafnvel þó að við reyndum að bjarga mér úr klóm mannanna með því að segja að við værum saman ( Sorry fríða... :) ) þá skipti það ekki neinu!! Þeir voru alveg jafn ágengir. brrr. ég fæ hroll!!! og gráhærðir menn um 60 eru EKKI mín deild! takk! fengum þó gefins bjór frá einum... smá gróði þar.
Svaf svo hjá strákunum... og fékk far með þeim í bæinn.
Renndum við hjá Benna og kíktum á 64 milljona porsche-inn. hel flottur bara.
Þegar Ragna var í óða önn að lesa á eitthvað skilti um bílinn var allt í einu lögð hönd á öxlina á henni og prúðbúinn maður (já giskiði á aldurinn, yfir 50 ) stóð þar með einhverja Porsche bók undir hendinni og tilkynnti mér það að það væri happdrætti þarna í gangi og ég hefði verið valin úr hópi fólks þarna og fengi vinning......
Bílinn sjálfann... lyklarnir væru í...
haha.
Wish it was true though.
hef ekkert á móti nokkrum milljónum. hvað ætli 64 milljónir séu margir Dihatsuar?
fór svo til Elvu (ekki ELvu Daggar) og æfði dimmiteringaratriðið villt og galið með stelpunum.
Héldum líka fína grillveislu þar sem við tróðum okkur út af fyrsta grillmat sumarsins.
Æfðum við svo dansinn í garðinum, nágrönnunum til mikillar skemmtunar enda klæddar í 80's föt, með leggings, legghlífum og skærum litum. Nema Kristen. hún er í kengúrubúining.
Held að það sé bara vegna þess að það er poki framan á búningnum sem hún ætlar sér að geyma bjórinn í ! :)
Jæja. ætli ég þurfi ekki að fara að reyna að sofa.
Ætla Ekki að láta Atla Má vekja mig í fyrramálið. tók það skýrt fram að ég væri vöknuð þegar hann kæmi í bæinn.. ( Er með merkilegann pakka úr víkinni, Nauðsynlega hluti fyrir 80's búninginn )
jæja
góða nótt
ég vona að ég lifi morgun daginn af. drykkja allan daginn...
Annars.
takk fyrir allt saman
SHARE:

þriðjudagur, 20. apríl 2004

Busy vika mar!!!

á morgun er lokapróf í líffræði 213 þar sem maður þarf að gjöra svo vel að kunna alla vöðva líkamans á latnesku og íslensku auk þess sem að vita hvað þeir gera. En þar er nú bara eiginlega smá dropi í hafið þar sem að þetta er bara smá partur af því namsefni sem ég þarf að vera að lesa AKKÚRAT núna undir þetta próf.
í þýsku var líka sett fyrir að setja skiladag á heimapróf sem við fengum í gær og eigum að skila á morgun.... og þar esm ég var að vinna í gær vannst mér ekki tími til þess að gera það.
Ætla að reyna að fá frest fram á flöskudag.
á svo að skila einhverju fleira drasli þá. en hef þó sumardaginn fyrsta til að læra. Eins gott að það verði rigning svo að ég freistist ekki niðrí bæ.
Og talandi um flöskudag
svo virðist sem að ég sé að fara að DIMMITERA!!!! (ætli sumardagurinn fyrsti fari svo ekki eftir allt bara í dansæfingar og í að læra texta fyrir skólaatriðið ) :) hehehe. en það verður ekkert smá gaman mar.
Klæða sig í fáránleg föt, dansa eins og fáviti fyrir framan skólann og vera fullur allan daginn.
Á laugardeginum held ég svo að sé planið að fara í sumarbústað með Orra Ö og fagna ammilinu hans sem var by the way í gær.
Ætla að fara að byrja að læra...
sjáumst eftir 5 ár þegar um hægist.
SHARE:

mánudagur, 19. apríl 2004

hey. ég var að fatta eitt.
Síðasta kvöldið mitt á pítunni er í kvöld því að klukkan tíu mun ég hætta að vinna þar. :)
Hvet alla til að koma til að fá eina af frægu pítunum hennar Rögnu
SHARE:
Blog Design Created by pipdig