þriðjudagur, 24. nóvember 2026

Ristaðar möndlur

Vissir þú að þú getur gert ristaðar möndlur heima, alveg eins og þær sem þú kaupir á jólamörkuðunum? Og á sama tíma fyllist heimilið af unaðslegri jólaangan af kanil og vanillu.

Þetta er uppskriftin mín sem ég hef gert í mörg ár og hún klikkar aldrei. Þetta tekur um 30 mínútur, er alveg ótrúlega auðvelt og allir geta gert þetta!

Möndlurnar henta líka mjög vel sem gjafir á aðventunni. Settu þær í fallega krukku með borða og þá ertu komin með ljúfa heimagerða gjöf.



Uppskrift

  • 6 dl möndlur
  • 4 dl sykur
  • 2 dl vatn
  • 1 tsk kanill
  • 2 tsk vanillusykur

Aðferð

1. Byrjaðu á því að rista möndlurnar á pönnu í um 5 mínútur við meðalháan hita og hrærðu reglulega. Þetta þurrkar möndlurnar og gerir þær miklu stökkari í lokin.

Möndlurnar eru ristaðar á þurri pönnu

2. Settu sykurinn, vatnið, kanilinn og vanillusykurinn út á pönnuna og láttu suðuna koma upp. Hrærðu annað slagið.

Sykurlögurinn sýður með möndlunum

3. Þegar vökvinn fer að gufa upp og blandan byrjar að þykkna þarftu að hræra oftar og lækka aðeins hitann.

4. Skyndilega gerist þetta hratt og þú ferð úr sykurlegi yfir í alveg þurran og kristallaðan sykur. Ekki örvænta, þetta á að gerast! Lækkaðu hitann í meðalhita og hrærðu, leyfðu sykrinum að bráðna aðeins og hrærðu svo aftur. Endurtaktu þar til allur sykurinn hefur hjúpað möndlurnar með glansandi sykurhjúp!

Sykurinn kristallast og bráðnar svo aftur utan um möndlurnar

5. Settu möndlurnar á bökunarpappír og láttu þær kólna alveg áður en þú setur þær í loftþétt ílát.

Möndlurnar fara beint á bökunarpappír að kólna

Góð ráð

  • Notaðu stóra pönnu með þykkum botni svo sykurinn brenni síður við.
  • Ekki fara frá pönnunni í lokin því þá gerist allt mjög hratt.
  • Dreifðu vel úr möndlunum á bökunarpappírnum á meðan þær eru heitar svo þær festist ekki saman í einn stóran klump.

Fallegt í krukku eða poka með rauðum borða

Þessar möndlur eru svo dásamlega góðar!! Ef þú prófar þá máttu endilega merkja mig á Instagram @ragna.is, ég elska að sjá útkomuna hjá ykkur.

kveðja, Ragna

SHARE:
Blog Design Created by pipdig