þriðjudagur, 27. júlí 2010

Kjúklingaborgarar í Naanbrauði



Eftir að Rachel Ray var í Skjá einum hvern einasta virkan dag í töluvert langan tíma hefur mig langað til þess að á íslandi fengist kjúklingahakk. Eftir að ég fékk matvinnsluvélina í jólagjöf síðustu jól varð mér það samt ljóst ða ég þarf ekki lengur  kjúklingahakk til að gera kjúklingabollur eða borgara. 


Ég klambraði þessari uppskrift saman með Saffran kjúklingaborgarana í huga. s.s. Kjúklingaborgari, naanbrauð og jógúrtsósa.


Þetta var mín tilraun






Uppskrift - Kjúklingaborgari   um það bil 6 stk 


650 gr kjúklingabringur
5 vorlaukar (skilið eftir ca 2-3 cm af þessu græna efst)
1.5 msk engifer 
2 stk hvítlauksrif
1.5 msk cummin
2 tsk paprikuduft
1.5 tsk sítrónusafi 
ca 2 msk fersk steinselja
1 tsk salt
1/2-1 egg
1 dl brauðmylsna
dass af pipar


Allt þetta er sett í matvinnsluvél og mixað saman. Engiferið og vorlaukinn og bringurnar er skorið niður í aðeins minni bita áður. 
Þetta er svo sett inn í ísskáp í hálfa-heila klst áður en þetta er mótað í litla borgara og steikt á heitri pönnu/grillpönnu




Uppskrift - Tzatziki  sósa


2 dl grísk jógúrt
hálf agúrka
1-2 hvítlauksrif
1 tsk salt
1/2 msk sítrónusafi
1 msk ólívuolía 
1 msk Dill (ég sleppi því)


Agúrkan er skorin langsum og fræin eru skafin úr með teskeið. Hún er svo rifin á frekar grófu rifjárni og sett út í jógúrtið. Einnig er hvítlauksrifið rifið á rifjárninu (fínni hliðinni ef það er í boði). Restinni af innihaldinu er svo hrært samanvið. 








Naan brauð... Ég gerði mitt eigið naanbrauð sem ég steiki á mjög heitri pönnu. Þegar ég er búin að steikja brauðið bursta ég örlítið af hvítlauksolíu/hvítlaukssmjöri á aðra hliðina og strái pínu salti yfir brauðin. Endilega leitið að  ykkar uppskrift á netinu (e. Naan bread recipe). eða nota þessa sem ég  hef bloggað um hér






Samsetning :
Naan brauð, sósa, nokkur lauf af spínati, kjúklingaborgari, rauðlaukshringir, smá sósa aftur og að lokum naanbrauð aftur




Rosalega gott, nýtt og hollt 


enjoy

3 ræðumenn:

  1. Ég fann kjúklingahakk í Nettó í vikunni og varð að prófa að elda eitthvað úr því. Var bent á þessa uppskrift í gegnum google og hafði hana til hliðsjónar, í mín buff fór hakk, rifinn hálfur rauðlaukur, hvítlaukur, gulrót og engifer, cummin, paprika, salt, egg, hveitikím, steinselja, sítrónusafi og kóríander. Smellti þessu á heilsugrillið og snæddi eins og þú lagðir til. Algjört dúndur og MUN betra en Saffran :) Takk kærlega - á sko eftir að elda þetta aftur og lesa bloggið þitt :)

    ReplyEyða
  2. snilld að það fáist loksins kjúklingahakk hérna á Íslandi :)

    ReplyEyða
  3. Er að gera þetta núna! eða svipað.. Get ekki BEÐIÐ eftir að smakka!
    Frábær síða ég er svo að fara að verða fastagestur hér ;)

    ReplyEyða

Ragna.is er matarbloggsíða sem allir geta notið og notað


Veljið Anonymus ef þið eruð ekki með heimsíðu, gmail eða annað til að skrá ykkur inná. Vinsamlegast kvittið svo undir nafni :)