Einföld tómatsúpa og mjög kreppuvæn!
Fyrst er að steikja grófsaxaða laukinn ásamt 2 stykkjum af niðurrifnum hvítlauksrifjum, til þess þarf um 2 msk af olíu og jafnvel minna ef þið viljið. Setjið 1 lárviðarlauf útí og steikið aðeins í um 3 mínútur við miðlungs hita.
Út í laukinn setið þið svo 2 dósir af niðursoðnum hökkuðum tómötum. Mega líka vera heilir, þetta fer jú allt í mauk að lokum. Í þetta er einnig bætt við 1 matskeið af púðursykri eða einhverskonar sætuefni. Ég salta líka og pipra þetta ríflega.
Þegar tómatarnir hafa fengið að sjóða með lauknum, hvítlauknum og lárviðarlaufinu í um 10 mínútur þarf að mixa súpuna. Munið bara að TAKA lárviðarlaufið úr fyrst! Hægt er að nota töfrasprota, matvinnsluvél og jafnvel bara gamaldags kartöflustappara
Ég notaði matvinnsluvélina sem ég fékk í jólagjöf frá M&P
Þegar búið er að blanda þetta nægilega er súpunni hellt aftur í pottinn og bætt við 2 bollum af vatni auk 1 stk kjötkrafttening. Ég setti svo eina matskeið af þurrkaðri basilíku. Hefði ég átt ferska hefði ég að sjálfsögðu notað hana. Smakkið svo súpuna til. Ég bætti við auka kjötkrafti og pipar.
Þetta varð svo afraksturinn. Restina setti ég í box og hitaði mér í hádegismat næstu 2 dagana.
Hvítlauksbrauðið var einfalt. Hvítlauksolía sett yfir brauðið (til í bónus), örlítitlu af salti og oregano stráð þar yfir og rifinn mozzarella settur yfir bæði brauðin. Þetta var svo sett á álpappír og undir grillið í bakaraofninum þar til að osturinn var bráðinn.
Verði ykkur að góðu
Uppskrift:
- 2 matskeiðar olía
- 1 stk laukur, gróflega saxaður
- 2 hvítlauksrif, marin, söxuð eða rifin
- 1 stk lárviðarlauf
- 2 dósir af hökkuðum/heilum tómötum
- 1 matskeið púðursykur
- 2 bollar vatn
- 1 kjötkraftsteningur
- Salt of pipar eftir þörfum
mmm... tómatsúpa er með uppáhalds súpunum mínum - þ.e.a.s ef hún er ekki spillt með baconi. Ég ætla pottþétt að prufa þessa e-n tíman.
SvaraEyðaMatarbloggið fer vel af stað hjá þér!
Frábært framtak hjá þér Ragna Björg. Ég hlakka til að fylgjast með matarblogginu þínu.
SvaraEyðaTakk fyrir að deila þessu með okkur.
Búin að prufa súpuna, mjög góð! ég hlakka til að prófa fleiri uppskriftir frá þér :)
SvaraEyðaÞorbjörg K
mjög spennandi, hlakka til að búa til þessa og allar hinar uppskriftirnar þínar :D þetta er líka mjög flott hjá þér :D
SvaraEyðakv.Þurý það gleymdist ;)
SvaraEyðaYour mode of telling everything in this article is genuinely nice, all be capable of effortlessly be aware of it, Thanks a lot.
SvaraEyðaMy page ; Swimming Equipment
Eldaði þessa súpu í kvöld og hún bragðaðist mjög vel. Eg mæli sko með henni!
SvaraEyðaMjög góð súpa, Takk :)
SvaraEyðaBleesuð.ég er búinn að prufa súpuna ,allgjör snilld. og hún er mjög góður grunnur í sterka fiskisúpu
SvaraEyðabætti bara smá rjómaosti, grænmeti og fiski. Kveðja Jóhanna í Eyjum