Halló hæ !!
ég veit, ég veit, ekki búin að skrifa síðan í gær...
Annars er ég algerlega búin að týna mér eitthvað í þessum dögum hérna.... búinn að vera miðvikudagur síðan á má¡nudaginn, eða kannski síðan á sunnudagskvöld. æ ég man ekkert síðan hvenær. í gær........ hummm hvað gerði ég þá. Já. Arnar Már kíkti í heimsókn seint á gær og við tókum eina létta gítaræfingu, já og ekki fara að misskilja neitt núna. þið skiljið.... hann spilar á gítar A, Am og svo framvegis og ég syng, nágrannarnir voru eitthvað ekki sáttir.... hehe bara að hafa gaman af þessu! :) annars væri lífið helvíti leiðinlegt!
ætlaðii svona líka að fara á stoðtíma í myndlist.... en.... fann mér eitthvað betra að gera. Sótti videotækið til læknisins í 2. sinn. síðan hefur ekkert virkað síðan við fluttum inn... síðan var svo ekkert bilað. þurfti bara að kaupa eitthvað helvítis scarttengi! var einhver önnur rás að trufla videórásina eða einhver fjandinn..... ég trúi náttla öllu svona. get allavegana ekki mótmælt því sem er sagt við mig, þar sem ég veit ekkert um hvað ég er að tala þegar kemur að einhverju sem byrjar á raf- :)
Fór til Stefnis og eldaði fyrir hann salómon elías, öðru nafni salmon ella. Fannar kíkti þar líka við til að horfa á sjónvarpið. Hann er 100% kall. á nýa íbúð en ekki sjónvarp, hvað þá sófa... í staðinn er hann mikið frekar að spá í að kaupa sér kajaka með öllum græjum. líst vel á það. ég myndi örugglega frekar kaupa mér kökukefli og pottasett :)
er Horfði á 8 mile síðan, hún endaði bara ekki baun í bala! allt í einu kom bara einhver texti rúllandi yfir skjáinn, það var örugglega að minnsta kosti eitt atriði eftir að koma, alveg viss um það!
þráinn fór á busaball, fyrsta skólaballið hjá pjakknum :)
stóra systir voða stolt ! :)
hehe, keyrði hann af stað, vona bara að hann rati heim.
hehe
en verð að fara að lúlla, átti voða stutta nótt í nótt og ætli þessi verði lengri? ég ætla svona líka aldeilis að vona það.... :(
árún er að flytja út jafn óðum, ætlar að fá að geyma einhverja kassa í geymslunni hjá mér á þessu millibilshúsnæðisvandamá¡li..... ég held að hún sé jafnvel bara að fara að fela eitthvað þýfi þarna. :) humm.. mig vantar náttla magnara..... og dvd spilara.... og já, fleiri hestöfl í Trausta, endilega látið mig vita ef þið vitið af einhverjum á lausu til að skella í húddið (hestöflum þá!! :) ) á greyinu....
takk fyrir ....
bæbbbz
Engin ummæli
Skrifa ummæli
Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)