Þetta er uppskrift af vínarbrauðum sem ég hef borðað eins lengi og ég man eftir mér. Ég hef núna erft uppskriftina frá mömmu sem hefur líklegast fengið hana frá ömmu o.s.frv. og núna er ég farin að gera mín eigin vínarbrauð.
Það hefur alltaf verið bleikur glassúr á vínarbrauðunum hjá mömmu og langar mig ekkert að breyta því
Hér getiði lært hvernig þig eigið að gera gamaldags vínarbrauð sem eru uppáhalds krakkanna og frábært í ferðalög.
undirbúið herlegheitin |
Setjið allt það blauta ofan í skál í þurrefnablöndunni |
hrærið aðeins saman þar til að þið getið sturtað deiginu á borð og farið að hnoða |
hnoðið þetta :) |
deigið tilbúið |
þegar vínarbrauðin eru komin úr ofninum setjið þið á þau glassúr (þau þurfa samt aðeins að kólna) og skerið í bita. |
fáið ykkur stórt glas af mjólk og gæðið ykkur á ! |
uppskrift:
(1 bolli eru 250 ml)
6 bollar hveiti
2 bollar sykur
200 gr. smjörlíki/smjör
3 tsk lyftiduft
½ tsk hjartarsalt
2 stk egg
ca 2-3 dl mjólk
smá sítrónudropar og vanilludropar
1 krukka rabbabarasulta
eins og þið sjáið þá er uppskriftin stór! Endilega minnkið hana ef þið viljið ekki kúffulla hnoðskál af vínarbrauðum :)
Aðferð:
-Setjið þurrefni í skál og myljið smjörlíki/smjör vel saman við.
-Bætið eggjum, mjólk og smá f sítrónudropum og vanilludropum saman við og hnoðið saman.
-skiptið deiginu í 3 hluta og fletjið hvern hluta út í ferning, skerið hvern ferning niður í 3 lengjur og setjið rabbabarasultu á miðju hverrar lengju.
-Brjótið enda lengjanna inn að miðju en látið endana ekki snertast. (ath, deigið á eftir að lyfta sér helling í ofninum svo hafið ekki miklar áhygjur af því að deigið sé svoldið þunnt)
-Færið lengjurnar yfir á plötur með smjörpappír og bakið við 180°C í um 15 mínútur eða þar til að lengjurnar eru aðeins farnar að brúnast.
-Takið lengjurnar út, útbúið glassúr (flórsykur, vatn og smá rauður matarlitur, ef til vill smá möndludropar) og pennslið yfir lengjurnar.
-Skerið lengjurnar niður og geymið í boxi með loki.
-Geymist vel
enjoy !
Engin ummæli
Skrifa ummæli
Ragna.is er matarbloggsíða með sniðugum og auðveldum uppskriftum að gómsætum kökum, mat, meðlæti, brauðum, súpum og fleira.
Myndir fylgja flestum uppskriftum :)