Þessar kökur eru góðar.
Fyrst var ég fyrir töluverðum vonbrigðum (þegar þær voru nýkomnar útúr ofninum) en daginn eftir sættist ég á þær og núna finnast mér þær vera alveg yndislega góðar .... jólalegar, smá öðruvísi og ekkert of væmnar
Smjör og sykur þeytt saman, sírópi, kryddi, matarolíu og vanilluextract bætt við og hrært betur saman |
þetta er skelfilega girnilegur litur... |
eggjum bætt útí, einu og einu |
og að lokum hveiti og matarsóda |
hvítt súkkulaði skorið í grófa bita og bætt útí |
Uppskrift (gerir um 70-80 kökur)
200 gr smjör
1 bolli sykur
1/2 bolli molasses / dökkt síróp (ég notaði dökkt sýróp en molassess fæst í heilsubúðum)
2 msk matarolía
1 tsk vanilluextract
1 1/4 tsk kanill
1 1/4 tsk negull
1 tsk engifer
2 egg
3 1/2 bolli hveiti
2 1/4 tsk matarsódi
1 1/2 bolli hvítt súkkulaði skorið gróflega í bita
Aðferð:
-Þeytið vel saman smjöri og sykri.
-Bætið útí molasses/sírópi, matarolíu, vanilluextraxt, kanil, negul og engifer og þeytið þar til vel blandað
-Þeytið saman við eggjum, einu og einu í einu
-Hrærið hveiti og matarsóda saman við
-Mótið í litlar kúlur í höndunum sem eru um 2-3 cm í þvermál og veltið kúlunum uppúr sykri.
-Raðið á plötu og hafið gott bil á milli, þær renna töluvert út
Bakað í 10-12 mínútur við 180
ath:
-íhugið ykkur gæti þótt gott að bæta við kanil, negul og engifer (kökurnar eru ekki mjög kryddaðar) og einnig að bæta kannski við meira súkkulaði
-Þessar kökur eru gerðar af fyrirmynd snickerdoodle kökum. . . Þeim er velt uppúr kanilsykri áður en þær eru bakaðar. Ég væri til í að prufa það með þessar líka.
enojoy
Bakaði þessar (eftir uppskriftinni þinni) og velti þeim upp úr kanilsykri. Þær eru rosagóðar.
SvaraEyðaKv.
Sigrún Guðm.