ég vanalega butterfly'a bringuna og rúlla henni svo upp, festi hana svo saman með bómullagirni sem ég fékk í Hagkaup. Hér er gamalt blogg þar sem ég tala meira um hvernig ég butterfly-a bringuna.
fyllingin komin ofan á bringuna, osturinn að mestu bráðnaður og döðlurnar farnar að leysast í sundur |
rúlla upp |
hnýtt saman |
komin útúr ofninum .. |
ekki hægt að segja að þessi bringa hafi ekki verið safarík ! :) |
Uppskrift
fyrir eina bringu
1 krukka af fetaosti (í bláu krukkunum)
1 laukur
1/3-1/2 poki af döðlum
já... það er ekkert fleira.
Engar afsakanir um að þú kunnir ekki hitt eða þetta
nú þarf b ara að saxa allt frekar fínt (mátt nú sleppa því að saxa fetaostinn:) ) skella þessu í pott (ekki nauðsyn að nota nema um helming af olíunni í krukkunni)
Hrærið öllu saman við vægan hita þar til osturinn er farinn að bráðna og döðlurnar farnar að mýkjast upp og tætast niður. Setjið á útflatta kalkúnabringu (eða troðið þessu í vasa á bringunni sem þið gerið með hníf), kryddið bringuna með góðu kalkúnakryddi, bindið saman svo allt gumsið leki nú ekki út og skellið inní ofn á 190°C í eldföstu móti og munið að það er alveg gjörsamlega glórulaust að elda kalkún eða kalkúnabringu án þess að nota hitamæli.
Hér með fjárfestið þið ykkur í svoleiðis græju (sem þarf ekki að kosta mikið), stingið í miðja bringuna (passið kannski að láta ekki pinnann enda í fyllingu) og eldið þar til að mælirinn segir 70°C og takið þá bringuna út og látið standa í 10-15 mín.
mér finnst svo alltaf best að sneiða nokkrar sneiðar af áður en ég set bringuna a borðið. Bara af því að það er alltaf jafn erfitt og vandræðalegt að reyna að skera þegar maður situr ! (svona fyrir utan það að allar sneiðarnar fara beint á diskinn hjá matargestum og þess vegna hentugt að vera með tilbúnar sneiðar).
Fyllingin sem vellur út úr bringunni er svo skafin uppúr mótinu ef hún er ekki brennd og borin á borð fyrir þá sem vilja enn meiri fyllingu :)
enjoy!
Þetta er mjög gott, frábær uppskrift
SvaraEyðakveðja Helga
Mmmmm, ELSKA þennan rétt - hann sló rækilega í gegn hjá fjölskyldunni og er alveg uppáhalds núna!
SvaraEyðaÞetta er jólamaturinn ár eftir ár hjá mér. Kveðja, Rúna
SvaraEyðaBerið þið fram einhverja sósu með þessum rétti?
SvaraEyðaÞessi er æðisleg, ekkert smá góð:-)
SvaraEyða