Einhver var búinn að svara myndagátunni sem ég setti hér inn fyrir helgi.
Það sem var í skálinni voru öll innihaldsefni fyrir bláberjamuffins og ég get sagt ykkur það að þessar bláberjamuffins eru ekki af verri gerðinni og algjört nammi nammi namm!
Ég á enn slatta af bláberjum í zip-lock pokum inní frysti sem ég týndi sl haust í gríðar mikilli háskaför með Brynju (kasóléttri) og Kollu vinkonum mínum en ætla ég ekki að fara nánar útí þá ferð nema að segja að það fóru 2 jeppadekk á haugana þegar heim var komið (þetta eru dýrustu bláber í Reykjavík og þó víðar væri leitað!)
Ég hvet samt alla til að eyða einni klst eða svo næsta haust til að skríða út í móa með vinum, fjölskyldum eða ein með ipod í eyrunum og týna nokkur bláber í fötu til að eiga í frysti... Kostar ekki neitt að týna bláberin, hægt að búa til gómsætar sultur og frosin bláber má nýta allt árið um kring til að gera heitar bláberjasósur, bláberja súpu, bláberjakökur, bláberjamuffins, bláberjasaft, bláberjasalatdressingu, bláberja boozt og svo sjálfsagt eitthvað meira ef ykkur dettur í hug.
Ef þið hafið ekki nokkurn áhuga á að fara og týna bláber (og ég þekki nú alveg nokkra sem eru á þeirri skoðun að berjatýnsla sé með því leiðinlegra sem hægt sé að gera í lífinu) þá fást frosin ber í pokum í flestum búðum
Hér kemur samt gómsæt uppskrift að stórum fluffy bláberjamuffins með krispí topp og safaríkum berjum í miðjunni.
Í flest öllum góðum bakstri byrjar hamingjan með smá smjöri og sykri |
Svona lítur fallegt og fluffy deig út :) |
Öll þurrefni + mjólk sett útí |
uppskriftin segir hvergi að maður eigi að setja vanilludropa. Mér finnast samt vanilla + bláber vera jafn gott par og sítróna + bláber og skellti 1/2 teskeið af dökkbrúnu vanilluextract gulli útí. |
útí blönduna fara 2 bollar af bláberjum.... |
Eftir góðan tíma í ofninum litu kökurnar svona út ... ó mæ!!! |
Hér var erfitt að hringja ekki út hópsímtal á vinkonurnar og bjóða þær akút í kaffi... |
Sjáið þessi fallegu bláu ber... mmmm |
Gerir 10 stk stórar muffins eða 12 venjulegar
115 gr smjör
1 + 1/4 bolli sykur
2 egg
2 bollar hveiti1/2 tsk salt
2 tsk lyftiduft
3/4 bolli mjólk (ég bæti vanalega um 2-3 msk í viðbót)
(1/2 - 1 tsk vanillu extract ef þið viljið)
2 bollar bláber (frosin eða fersk)
Aðferð:
-Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan lýsist.
-bætið eggjunum útí einu og einu og hrærið vel á milli. Þeytið þessu vel saman þangað til ykkur finnst blandan orðin loftmikil og ljós
-Bætið þurrefnum + mjólk útí og hrærið þar til það er blandað. Engin ástæða er að hræra kökudeig lengur en bara til að það blandist vel saman. Sé það hrært of vel binst glúteinið of mikið og kakan getur orðið seig
-Setjið muffinsið í muffinsform, með pappírsformum eða ekki og stráið smá sykri yfir muffinstoppana.
-Bakið í ofni við 180°C í 30-40 mínútur. Mínar muffins voru inni í 42 mínútur en séu notuð fersk, ófrosin ber þá mun bökunartíminn vera styttri.
Ath að ef þið geymið muffinsið yfir nótt eða í einhvern tíma, ekki setja það í poka eða í box með loki... Muffinsið er mjgö safaríkt og mjúkt og toppurinn verður mjúkur og blautur ef það er sett lok eða ofan í poka. . . Leyfið því að standa á borði í staðinn
Ath nr 2
Ef þið eigið ekki bollamál... Gerið þá ráð fyrir að bollinn sé 250 ml eða 2.5 dl
Að vísu eru Bandaríkjamenn og Evrópubúar ekki sammála um stærð bollanna en í Bandaríkjunum er einn bolli 237 ml og í Evrópu er bollinn 250 ml
Þessi uppskrift er upprunanlega bandarísk svo ef ykkur langar að leika ykkur að því að reikna út 237 ml af hveiti osfrv ten go ahead.
Ég hef persónulega ekki lent í veseni með að nota 250 ml í staðinn og bæta frekar örlítið af mjólk við til að vega upp á móti. Ég er samt búin að finna bandarískt bollamál í Pipar og Salt (ein af mínum uppáhalds búðum !) og þarf að fara að kaupa mér það bráðum.

Enjoy !!!!
Það er alltaf svo gaman aðlesa bloggið þitt Ragna
SvaraEyðaÁslaug
Nú langar mig í muffins...
SvaraEyðammmmm. obbosiss muffins
SvaraEyðaVantar í skrifuðu uppskrift hvar þú bætir inn bláberjunum. Þurfti að skrolla upp í myndirnr til að fá að vita það.
SvaraEyðaAnnars skemmtileg og góð uppskrift.
Hef bakað þessar frá þér og þær eru mjög fínar
SvaraEyða