Amma Ragna dó í morgun eftir baráttu við krabbameinið.
Þetta fékk ekki langan aðdraganda þó svo að síðustu 2 mánuði hafi þetta verið erfitt.
Lengst af var hún heima þar sem allir hugsuð fallega og vel um hana en undir lokin var þetta orðið öllum svo erfitt og þungt svo að hún fékk að vera uppá Hjallatúni þar sem henni leið betur og hægt var að hugsa betur um hana.
Hún lést svo í morgun og hefur loksins fengið friðinn sem hún á skilið eftir þennan erfiða tíma.
Allir sem þekktu hana munu sakna hennar. :*
Ég samhryggist þér innilega elsku Ragna Björg..... amma þín var einstök kona og hennar verður án efa sárt saknað. Knús.
SvaraEyðaSamhryggist þér innilega dúlla :) Æðisleg myndin af ykkur
SvaraEyðaKv. Sandra