Þessi háskólapróf fara alveg með mann. Magnið af efninu er yfirþyrmandi, smáatriðin sem maður þarf að muna eru óendanleg og skilgreiningar sem við þurfum að kunna næstum upp á staf aaalllt of margar. Ætla ekki að hugsa mikið meir um þetta í bili. Ein
kunnirnar koma örugglega seint eins og alltaf í þessari deild svo að þarf ekki að hugsa of mikið um þær á jólunum þó svo að það sé gott að fá allt á hreint sem fyrst. Vona svo að ég hafi náð öllu, og allavegana ef ég fell í einhverju, að falla bara í einu en ekki tvemur svo að ég fái einhver námslán..
Hræðilegt að líta á teljarana á þessum helstu síðum og sjá 2 dagar til jóla ! ég er bara ekki komin í jólaskap, svo einfalt er það. Guð, jólin eru ekki á morgun heldur hinn!!
jólagjafirnar eru flestar tilbúnar og ég er búin að skila einhverjum af mér.
Fór á jólaballið með Páli óskari á Nasa í gær með fullt af hjúkkum. ó ég skemmti mér svoooo vel. Hitti fullt af skemmtilegu fólki og marga sem ég hef ekki séð lengi. Dansaði líka
endalaust mikið í troðningnum á dansgólfinu. Var samt alveg uppgefin fyrir djammið en þrjóskaðist við og fór samt á djammið en var þar af leiðandi ko
min heim um 4, ansi sybbin.
Byrjaði daginn svo kl hálf 2 að skella mér í klippingu og litun til Hrundar sem var virkileg þörf á. En hverjum er ekki sama með að líta illa út í prófum? :)
hér eru 3 myndir frá gærkvöldinu
Svo er náttla alveg öruggt að það verða engin jólakort í ár. Sorrý...
Og já, minni á áramótaballið á Kaffinu
vá þú er svo sæt og fín, lítur ekkert smá vel út skvís ;)
SvaraEyðaþú ert svo mikil skvísa!!!! flottur kjóll sem þú ert í ;)
SvaraEyðaBOMBA!!!!! Þú ert ekkert smá sæt að venju. Hefði svo viljað vera með ykkur, hugsaði allavega stíft til ykkar. knús sé þig eftir rúma viku.....
SvaraEyða