Það eru nokkur lykilatriði sem þið þurfið að hafa í huga áður en þið byrjið ...
-Ekki eiga minna en einn líter af mjólk áður en þið byrjið
-Best er að nota Grød Ris. Það er næstum því alger nauðsyn til að fá glansandi og þykkan graut
-Reiknið með klst í verkið... Það er eiginlega ekki hægt að flýta sér nema að brenna við
Uppskrift (fyrir um 3)
1.5 dl grjón
2 dl vatn
ca 8 dl mjólk
u.þ.b. 1/2 tsk salt
Já, þetta er ekki meira en þetta.
Aðferð:
- Setjið grjónin í pott ásamt vatni og salti og sjóðið í 2-3 mínútur. Bætið svo um tæpum hálfum líter af mjólk útí. Þegar mjólkin er farin að bullsjóða, lækkið hellinua niður í 1, setjið lokið á og látið þetta malla og hrærið í af og til! Helst farið í að þrífa uppúr einhverjum skúffum í eldhúsinu eða bakið eitthvað á meðan, það er eiginlega ávísun á brenndan graut að reyna að gera eitthvað utan eldhússins á meðan :)
Þegar þið eruð búin að gera grautinn nógu oft, þá farið þið að þrífa eitthvað eða bardúsast fyrir utan eldhúsið þar sem þið hafið orðið á tilfinningunni hvenær þarf að hræra í :)
-Þegar grauturinn er orðinn þykkur, bætið restinni af mjólkinni útí, hækkið á hitanum ef þið viljið á meðan suðan nær sér aftur á strik, lækkið aftur niður í 1 og haldið áfram þar til grauturinn er orðinn glansandi og þykkur.
Hér á heimilinu er herð að gera grjónagraut í hádegismat á laugardögum. Eitthvað sem ég ólst upp við á mínu æskuheimili í Vík. Núna þegar ég held mitt heimili geri ég þessa uppskrift fjórfalda og á þá graut fyrir reddingar í kvöldmat út vikuna. Krakkarnir elska grjónagraut!
Ath
-ég nota oftast nýmjólk af því að ég á yfirleitt ekkert annað heima. Léttmjólk er einnig í lagi
-Það er mismunandi hve þykkan graut þið eruð vön að borða... minn grautur er mjög þykkur
-Ég set of vanilluextract útí í lokin - leynitrikkið ☺️
-Alls ekki gleyma að salta grautinn
Borðist með kanilsykri, rúsínum og rjóma/mjólk
(mér finnst einnig krækiberjasaft útá vera algert uppáhald)
Það er æði að gera hann úr nýmjólk og mér finnst möst að setja vanillustöng eða vanilludropa útí :)
SvaraEyðaKveðja,
Helga Reynis.
Ef ég hef þeytt of mikinn rjóma þá set ég rest í frysti og nýti síðan í mjólkurgrautinn. Kv. Margret
SvaraEyðaÉg set oftast hunang útí, finnst það rosa gott :) Kv. Arndís
SvaraEyðaEg set ekkert
SvaraEyðaHellinua? Ætti þetta að vera helluna?
SvaraEyðavæntanlega gerpið þitt
EyðaHversu mikið vanillu exstract seturðu?
SvaraEyða