Sunnudagur... fengum aðeins að sofa út í dag þar sem að Thea fór svo seint að sofa í gær...
Þegar við vöknuðum ákváðum við endanlega að dagurinn færi í ferð á ströndina og það gerðum við sko... flatmöguðum á teppum í svaka góðu veðri niður við sjó á milli þess sem við fórum og lékum okkur í sjónum, keyptum kæmpe stórar franskar pulsur og drukkum vatn.
Þráinn og Palli fengu í arf frá sínum foreldrum eitt stk brúnkugen og eru þeir orðnir ansi brúnir á meðan ég og Árún berum á okkur til skiptis 50+ sólarvörnina hennar Theu á þá staði sem við erum nú þegar búnar að brenna á. (glæsilegar)
eftir smá lúr heima fórum við svo út að borða á mexíkönskum stað niður við síkið í miðbæ Århus og þaðan fórum við á kokteila-bar þar sem við fengum okkur MIS-mikið-áfenga drykki... ;)
ætlaði bara að hafa þetta stutt...
h&m leiðangur nr 2 er á morgun.. mig "vantar" líka skó" Fjárframlög vel þegin takk;)
vó, gaman að sjá þig skrifa um aarhus! mig langar aftur, er með mikinn söknuð í hjarta þar sem mér finnst ég eiga doldið í bænum.. :´(
SvaraEyða? um að vinna þarna næsta sumar.. ekkert mál að redda íbúð yfir sumartímann sko
mig langar mig langar mig langar! nenniru að fara aðeins upp í ihå og kyssa skólann? ferð með bus nr 11
SvaraEyða