nóttin var helvíti spennandi ... með óráð, svima og svita og hefði verið einstaklega skemmtileg hefði einhver orðið vitni að hve rugluð ég var, ég satt að segja kann ekkert að fá hita og er ekki að fara að leggja það fyrir mig heldur.
bakið er ekkert svo slæmt heldur og veit ég ekki heldur hvort að það sé íbúfen (bólgueyðandi og verkjastillandi) að þakka.
næst er handlækningafræði á morgun ! og það er eins gott að ég verði komin með radical nephrectomiu á hreint og búin að læra bullið hjá Kidda hjartalækni :)
ég ætla að stelast niður í sjoppu (með húfu og í úlpu!) og kaupa mér samloku... fattaði að ég gæti varla búið nær sjoppu svo að deginum er sjálfsagt bjargað :)
takk fyrir kveðjurnar, ég var ekki sú bjartsýnasta í gær ! haha. já og þó... þetta var frekar fyndið allt saman.
passaðu upp á nýrun, NSAID virðist skemma þau e-ð.. svo geturu líka fengið magasár með þessari NSAID neyslu og ef þú ert helicobacter pylory jákv þá geturu í framhaldi af því fengið magakrabba :O
SvaraEyða