tag:blogger.com,1999:blog-5801160.post929829872956740312..comments2024-01-27T08:41:07.972+00:00Comments on Ragna.is: Bíldudals Grænaregummighttp://www.blogger.com/profile/10415829224415698677noreply@blogger.comBlogger5125tag:blogger.com,1999:blog-5801160.post-85581027506590946002009-07-10T00:28:19.040+00:002009-07-10T00:28:19.040+00:00Þinn breiði rass ætti nú alveg að þola holurnar á ...Þinn breiði rass ætti nú alveg að þola holurnar á veginum nema í því hastari bíl, ég hef ekki fengið betri þjónustu fyrir ekkert,en mindi ekki sætta mig við að hver sem er gengi inn í búningsklefa sem eg væri í til að fara á vc,vestfyrðingar eru búnir að vera í kreppu í 15 ár svo vertu bara með sól í hjarta og þakkaðu fyrir kv HelgaAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5801160.post-52711824663669142952009-07-09T08:00:41.725+00:002009-07-09T08:00:41.725+00:00Sæl nafna
Það er leiðinlegt að þín upplifun sé sv...Sæl nafna

Það er leiðinlegt að þín upplifun sé svona neikvæð. Ólund einstakra persóna sem maður hittir á leið sinni um landið ætti ekki að lita skoðanir manns á öllum á svæðinu. Það er ekki sanngjarnt. Hef reyndar upplifað verri þjónustu en þetta meira að seigja í Höfuðborginni ;)
Hér er mikið gert til að undirbúa hátíðina og ekki rukkað fyrir tjaldstæði þar sem þau eru ekki fullbúin. Fólk sem kemur á hátíðina hefur hingað til verið mjög jákvætt enda er það fólk sem hefur tengingu við staðinn og veit hvernig landið liggur hér. Það er alltaf verið að bæta aðstöðuna hér en það gerist ekki allt í einu, það er hreinlega ekki fjármagn í það. Við erum vön að sníða okkur stakk eftir vexti á þessu svæði. Þegar fólksfjöldi margfaldast svona ( hér búa 140-150 manns að staðaldri en á Baununum voru ca 2000) er allveg viðbúið að eitthvað klikki en það er þá reynt að bæta það næst.
Þessi hátíð hefur verið haldin á tveggja ára fresti síðan 2003, hefur verið vel sótt og fólk almennt mjög ánægt sem er allveg frábært og viljum við halda því. Hún er miðuð við að fólk komi hingað og njóti þess að vera hér, skemmti sé og öðrum og sé ekki að nöldra yfir smámunum hedur eru hlutirnir bara leystir með jákvæðni og því viljum við halda. Með jákvæðni er allt auðveldara :)
Við þurfum þá kannksi ekki að njóta nærveru þinnar næstu hátíð.

Með bestu kveðju
RagnaAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5801160.post-18807410979532119342009-07-09T04:38:52.367+00:002009-07-09T04:38:52.367+00:00Sæl Ragna,
Langar mig aðeins að kommenta á þetta ...Sæl Ragna,

Langar mig aðeins að kommenta á þetta blogg þitt um „óþjónustulund Vestfirðinga“.
Ég er ekki hissa á því að „kerlingaálftin“ í íþróttahúsinu á Bíldudal hafi rukkað þig um 320 króna sturtugjald enda hefði það ekki verið ódýrara í Laugardalnum eða annars staðar á landinu! Við megum alls ekki gleyma því að byggðakjarnar vestur á fjörðum hafa gengið í gegnum lengri kreppu en sjálft Ísland er að ganga í gegnum núna. Ég er sjálf ættuð austur af fjörðum og þótti mér stórmerkilegt þegar ég var í kringum 5 ára að verið var að malbika hverfið mitt! Þegar ég kynntist kærasta mínum frá Bíldudal fyrir um tveimur árum síðar, þá 22 ára, fannst mér stórundarlegt að stór partur vegarins vestur á firði væri ómalbikaður og er enn í dag! Seinna meir komst ég að því að þetta er ekkert undarlegt, hér er ekki nægt fólk til þess að malbik sé alla leið. Ekki er ég þó að bíða eftir svari frá þér þar sem þú munt sega mér það að þá ættu Vestfirðingar að flytja suður í bæinn! Hvernig færi landið þá og landsbyggðin? Einnig þykir mér leiðinlegt hvernig þú talar um „einu sjoppuna á staðnum“. Það þarf engan geimvísindasérfræðing í viðskiptafræði til þess að segja okkur það að hér reki sig ekki nema einungis ein sjoppa...það er ekki markaður fyrir krá, ekki markaður fyrir tvær sjoppur, ekki markaður fyrir Bónus, ekki markaður fyrir N1, ekki markaður fyrir Hagkaup, ekki markaður fyrir verslanir af neinu tagi nema eina verslun sem er með allt eins og Vegamót. Þau ættu helst að fá þakkir fyrir að bjóða ferðalöngum þá allavega upp á það að fá kaffi og með því á ferðalaginu sem og meiri mat til að snæða! Vona að þú munir ferðast um landið þitt með jákvæðari hætti og með gleði í hjarta sem mun færa þér minningar í fjölskyldualbúmið á þessum skrítnu tímum sem við göngum í gegnum! Kær kveðja, Silja.

Ps. þetta með verðið á klökunum... svipað verð er tekið fyrir klaka í 10-11 en manni líður kannski betur með að kaupa þá þar sem hluti af verðinu rennur til styrktar ABC barnahjálp! En á Bíldudal er engin 10-11 búð svo ef þig endilega vantar klaka, slepptu því þá að eyða peningum í þá eða reyndu að frysta þá sjálf :-)Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5801160.post-29282512003327361632009-07-08T17:00:06.107+00:002009-07-08T17:00:06.107+00:00Að gefnu tilefni langar mig að benda þér á að klós...Að gefnu tilefni langar mig að benda þér á að klósettið sem var í 100 metra fjarlægð var meira og minna vatnslaust alla helgina og þurftum að láta "gera við það" 3svar sinnum.

Tjaldstæði eiga að koma með rennandi vatnt. punktur. Fólk er ekki látið ganga út í Laugardalslaug eftir vatni þó það kjósi að tjalda í Laugardalnum.

Mér finnst gott hjá þér að hafa talið alla 5 jákvæðu hlutina sem ég nefndi í blogginu og vera fyrir vikið eins og þú ert að lýsa mér, ansi gagnrýnin og úrill yfir því sem mér (!) finnst þó að þú vitir ekki alla söguna. Þú hefur kannski lesið það sem ég setti inná facebook þessa helgi ? eða var ég búin að segja þér hvernig helgin var yfir höfuð. Eða varstu bara að lesa það sem stóð hérna á blogginu? ? :) (einmitt)
Varstu búin að heyra sögurnar sem ég heyrði frá öðrum um þjónustuólundina sem þeir urðu fyrir þessa sömu helgi ?

nei ... efast reyndar um það :)

hafðu það samt gott með þínar skoðanir og ég hef það alveg hreint ágætt með mínar.egummighttps://www.blogger.com/profile/10415829224415698677noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-5801160.post-57418729424262696242009-07-08T16:41:45.054+00:002009-07-08T16:41:45.054+00:00Af gefni tilefni langar mig að benda á að vatnskló...Af gefni tilefni langar mig að benda á að vatnsklósett með vaski 100m frá þessu tjaldstæði fyrir utan rennandi vatn við þvottaplanið (50m frá) og við bryggjuna (150m frá). Þú ættir ekki að dæma þjónustulund vestfirðinga af tveimur úrillum konum né Bílddælinga almennt. Þetta blogg lýsir frekar þér en öðrum. Þú notar 5 orð um hvað helgin var frábær allt annað neikvætt hmm... hver er úrill? Ættir að líta lífið aðeins jákvæðari augum það er miklu betra.

Ásdís.Anonymousnoreply@blogger.com