Þetta er líka kakan sem ég bakaði sumrin 2002 og 2003 þegar ég eiginlega allar þær kökur sem baka þurfti á Halldórskaffi. Ég veit satt að segja ekki hvort að sú uppskrift sé notuð þar ennþá. hmmm
Þetta er fool proof uppskrift, svona hérum bil en ég hef í gegnum tíðina verið aaaaðeins að prufa nýjungar og var besta breytingin sem ég hef gert að setja smjör í kremið (sjá nánar síðar)
Nýjasta nýtt var að gera uppskriftina tvöfalda og uppskar ég alveg gríðarlega fallega og háa gulrótarköku sem var girnilegri en allur heimurinn (í kökuheiminum amk)
Uppskrift:
6 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1.5 tsk matarsódi
1 tsk salt
4 tsk kanill
2 tsk múskat
4 dl sykur
2.5 dl matarolía
6 egg
6 dl fínt rifnar gulrætur
Aðferðin er einföld!
öllu er skellt í skál og hrært með sleif þar til allt er blandað saman!
Bakað við 180 gráður í 2 formum við 180°C í 30 mínútur
Ég á smá leynivopn í pokahorninu hvað varðar flottar og háar kökur! Ég er búin að panta mér á netinu svona Bake even strips frá Wilton. Þá setur maður utan um formið áður en maður bakar kökuna og maður sleppur við að fá kúpta köku. Í staðinn rís hún beint upp og verður alveg bein! Annars var ég alltaf að skera toppinn af til að fá sem fallegustu kökuna.
Einhversstaðar las ég um konu um daginn sem notar einfaldlega eldgamalt handklæði sem hún er búin að klippa í strimla, rennbleytir og hnýtir svo utan um formið. Hún sagði að það myndi gera það sama og þessar Wilton lengjur.
Ef þið eigið gamalt handklæði sem má klippa eða langar að panta ykkur svona lengjur þá mæli ég með því :)
Krem:
200 gr rjómaostur
100 gr smjör
1/2 tsk vanillu extract
900 gr flórsykur
1 msk sítrónusafi
Aðferð:
Smjöri og rjómaosti og vanillu extract er þeytt saman þar til það er orðið mjög mjúkt og aðeins fluffy. Smátt og smátt er flórsykrinum þeytt saman við með þeytaranum/hrærivélinni þar til að ykkur finnst kremið vera orðið nógu þykkt. Mismunandi er hvað ég þarf að nota mikinn flórsykur. Það fer eftir hvað flórsykurinn er þurr eða hvað rjómaosturinn er blautur. Þarf oft allt upp í 2 pakka.
Þetta krem er á stóru kökuna (2 falda uppskrift í 9" mót) en ætti að vera allt í lagi að gera þetta krem á einfalda köku líka.
Restina af kreminu væri hægt að setja á súkkulaði muffins ef ykkur leiðist ekki :)
Sett á milli botnanna og ofan á kökuna. Ath, kakan þarf að vera alveg köld !
Sé eftir að hafa ekki tekið mynd í betri birtu... og þegar búið var að skera í hana ! naaaammmm1!!! |